Pólitískur pistlahöfundur vill ókeypis birtingar og ríkisstyrk

"Aftur til hræðsluþjóðfélagsins" öskrar pólitískur pistlahöfundur yfir því að RÚV hafi ákveðið að hætta að borga henni laun af almannafé.

Hversvegna á RÚV að velja einn pólitískan pistlahöfund úr hópi fleiri hundruð bloggara, upphefja þá málpípu framyfir aðrar í morgunútvarpi ríkisfjölmiðils og fóðra með ótöldum hundraðþúsundköllum af almannafé?

Ríkisfjölmiðill á að vera hlutlaus fjölmiðill. Þar eiga allir eiga greiðan aðgang með sínar skoðanir. Miklu nær væri að allir bloggarar sem þess óskuðu gætu flutt pistla á RÚV í þeirri röð sem þeir berast rétt eins og aðsendar greinar til annarra fjölmiðla.

Umræddur bloggari fer mikinn á Eyjunni um málið, segist vera gersamlega ópólitísk um leið og hún vísar í "hræðsluþjóðfélag Davíðs" og segir suma miðla vera með "eiturtungur".

Ég vil óska RÚV til hamingju með uppsögn pólitíska bloggarans og vona að fleiri slíkar uppsagnir fylgi í kjölfarið. Þá skapast kannski grundvöllur í dagskrá RÚV til að taka á móti pistlum frá öðrum bloggurum og undirrituðum sem verða að sjálfsögðu hljóðritaðir og sendir RÚV án endurgjalds.

Framboð 7176 til Stjórnlagaþings á www.austurvollur.is/thor


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband