Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Burt með matarbiðraðir eða burt með þig!

Jóhanna, þú getur leyst úr vanda þess fólks sem bíður vikulega í matarbiðröðum með einu pennastriki. Kostar smápeninga.

Leysa úr vanda heimilanna með uppstokkun fjárlaga. Loka sendiráðum. Loka Varnarmálastofnun. Engin listamannalaun eða bitlinga til þeirra sem þegar eru á launum eins og t.d. Þráinn Bertelsson.

Sækja stolnu peningana. Þjóðnýta fyrirtæki þjófanna, Frumherja, Samskip og fleiri.

Þetta er einfalt. Drífðu bara í þessu eða skilaðu inn þínu umboði til forseta Íslands.

Framboð 7176 til Stjórnlagaþings á www.facebook.com/lydveldi


mbl.is Jóhanna: sit út kjörtímabilið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ræningjabæli - Er ekki kominn tími á útburð þingmanna af Alþingi?

FinnurOlafurÍsland er ræningjabæli. Bankaræningjar fara enn með hin raunverulegu völd. Ryksuga upp peninga stofnana og almennings.

Dómari dæmir fjölskyldu til að greiða banka meira en tvöfalt andvirði þess láns sem bankinn tók við af gjaldþrota banka í þjóðareigu.  Meira en tuttugu milljónir færðar í vasa ræningjanna.

Ráðherrar spóka sig á alþjóðlegum ráðstefnum og tala digurmannslega. Eyða milljörðum í gæluverkefni á meðan 1200 fjölskyldur eru við hungurmörk. Loka sjúkrahúsum og kyssa rassa í útlöndum með þátttöku í hernaðarbrölti. Eyða fjórum milljörðum í sendiráð og hernað. Aðeins 2% af upphæðinni þarf til að brauðfæða fjölskyldurnar. 

thrainn_bertelsson_5_prosent.jpgÞingmenn gefa sjálfum sér og vinum sínum bitlinga ofaná laun undir skrautyrðunum "heiðurslaun listamanns" eða eitthvað álíka fáranlegt.  Á meðan blæðir þjóðinni út. Er ekki kominn tími á útburð þingmanna af Alþingi?

Ég er í framboði til Stjórnlagaþings. Ég vil taka til hendinni og bera út ónýtu flokkana. Fá nýtt lýðveldi með beinu og milliliðalausu lýðræði. Framboð mitt er nr. 7176. Nánar á http://www.austurvollur.is/thor


mbl.is Tæplega 15 þúsund fjárnámsbeiðnir í ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband