16.4.2009 | 16:21
Útrásarvíkingar reyna að stöðva Ástþór í Reykjavík
Yfirkjörstjórn Reykjavíkurkjördæmanna hafa úrskurðað lista Lýðræðishreyfingarinnar ógildan þvert á úrskurði annar kjörstjórna landsins. Oddviti yfirkjörstjórnar í Reykjavík norður er Erla Árnadóttir sem starfar fyrir lögmannstofuna Lex sem einnig hefur starfað fyrir Ólaf Ólafsson, Samskip, Baug og aðra útrásarvíkinga.
Ástþór hefur opinberlega lýst yfir að útrásarvíkingarnir Ólafur Ólafsson í Samskip og fleiri skuli sæta gæsluvarðhaldi á meðan rannsókn bankahrunsins standi yfir. Þessu mun Lýðræðishreyfingin beita sér fyrir fá hún stuðning kjósenda. Einnig að mútuþægni stjórnmálaflokkanna sæti lögreglurannsókn og þar skuli fara fram húsleitir án tafar. Verði Ríkislögreglustjóri og aðrir embættismenn ekki við þessum tilmælum mun Lýðræðishreyfingin beita sér fyrir því að embættisskúrkum verði vikið úr starfi.
Landskjörstjórn fjallar nú um eftirfarandi kæru Lýðræðishreyfingarinnar:
Kæra til landskjörstjórnar
Kröfugerð:
1. að oddviti yfirkjörstjórnar í Reykjavíkurkjördæmi norður víki sæti.
2. að kjörstjórnarmenn yfirkjörstjórna beggja Reykjavíkurkjördæmanna afhendi upplýsingar um tengsl sín við stjórnmálaflokkana og útrásarfyrirtæki.
3. að úrskurðir yfirkjörstjórna Reykjavíkurkjördæmis norður og suður 16. apríl 2009 verði felldir úr gildi.
4. að það verði staðfest að framboðslistar Lýðræðishreyfingarinnar, P-lista, í Reykjavíkurkjördæmunum séu gildir framboðslistar.
Röksemdir:
Varðandi hæfi oddvita yfirkjörstjórnar í Reykjavíkurkjördæmis norður er á því byggt að Erla Árnadóttur oddviti yfirkjörstjórnar Reykjavíkur norður er lögmaður á sömu lögmannstofu og fyrirrennari hennar Þórunn Guðmundsdóttir, lögmannsstofunni Lex, en lögmannsstofan hefur mikið starfað fyrir útrásarvíkingana. Þórunn sagði í sjónvarpi fyrir framan þjóðina í janúar 2008 að það væri nauðgun á lýðræðinu í landinu byði Ástþór sig aftur fram í kosningum hér á landi. Þá lét Þórunn að því liggja að Ástþór hefði blekkt kjósendur í forsetakosningunum árið 2004. Lex starfar einnig fyrir Ólaf Ólafsson og Samskip en Ástþór stendur nú í málaferlum við þessa aðila eftir að hafa lýst því yfir að hann vilji að lögregla kanni bókhaldsóreiðu hjá Samskip.
Um kröfu um afhendingu upplýsinga er á því byggt að úrskurðir yfirkjörstjórna séu til komnir af annarlegum ástæðum sem má rekja til þess að Ástþór vilji beita sér fyrir því að útrásarvíkingarnir sem settu þjóðina á hausinn sæti gæsluvarðhaldi meðan rannsókn bankahrunsins stendur yfir og að það fari fram lögreglurannsókn á fjármálum stjórnmálaflokkanna og hugsanlegri mútuþægni þeirra.
Um úrskurðina er það að segja að við hjá Lýðræðishreyfingunni höfum fylgt leiðbeiningum þeim sem við höfum fengið frá dómsmálaráðuneytinu í hvívetna. Þá vísum við til þess að það sé ótvírætt að allir frambjóðendur hafa staðfest með undirskrift sinni vilja sinn til að vera í framboði fyrir Lýðræðishreyfinguna á þeim lista þar sem yfirlýsingin er lögð fram. Enn fremur hafa fjögur kjördæmi úrskurðað framboðslista hreyfingarinnar að fullu gilda en þeir voru lagðir fram með sama formi og í Reykjavíkurkjördæmunum.
Til upplýsingar viljum við enn fremur koma því á framfæri að við lögðum fram meðmælalista í samræmi við leiðbeiningar dómsmálaráðuneytisins sem ráðuneytið hafði fengið í tengslum við umsókn um listabókstaf. Yfirkjörstjórnir Reykjavíkurkjördæmanna sendu okkur aftur út á örkina til að safna fleiri undirskriftum þar sem þær höfnuðu þessum tilteknu undirskriftum. Þetta er á skjön við yfirlýsingar fulltrúa ráðuneytisins sem staðfesti síðast í gærkvöldi að það væri afstaða ráðuneytisins bæði nú og við fyrri kosningar að slíkir meðmælendalistar væru fullgildir sem meðmælendur með framboðslistum. Við öfluðum þessara meðmælenda og lögðum fram en þetta varð til þess að dýrmætur tími fór forgörðum og allar tímaáætlanir röskuðust m.a. framboðsfundir með kjósendum.
Reykjavík, 16. apríl 2009.
Ástþór Magnússon
umboðsmaður fyrir Lýðræðishreyfinguna
Garðar Björgvinsson

Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Bloggar, Dægurmál, Fjölmiðlar | Breytt s.d. kl. 16:23 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.