Ástþór Magnússon Wium
Ástþór stofnaði Frið 2000 árið 1995 og einn stofnenda Lýðræðishreyfingarinnar árið 1998, í kjölfar þess að hafa kynnt hugmyndir um beint og milliliðalaust lýðræði sem forsetaframbjóðandi 1996.
Í forsetakosningunum talaði Ástþór um heim græðgi, valdapots, svika og pretta og sagði Ísland lent í heljargreipum huldumanna sem væru að arðræna þjóðina. Hagkerfið myndi hrynja vegna spillingar í bankakerfinu og fjármálamarkaðir væru að þróast í óábyrg spilavíti. Þörf væri á verulegri endurskoðun og uppstokkun sem Ástþór vildi beita sér fyrir sem þverpólitískt afl frá Bessstöðum. Þetta virtist snerta valdamikla aðila í landinu því mikill undirróður hófst gegn Ástþóri og boðskap Friðar 2000 í kjölfarið.
Ástþór hefur á s.l. þremur áratugum ítrekað vakið athygli á tækifærum með þróun á beinu lýðræði m.a. með hugmyndum um Reykholtsskóla sem friðarháskóla, og Keflavíkurflugvöll sem miðstöð alþjóðlegrar friðargæslu og þróunarmiðstöð lýðræðis. Sjá nánar á www.forsetakosningar.is
Athugasemdir
Gleðileg jól Ástþór til þín og þinna.
kv.gmaria.
Guðrún María Óskarsdóttir., 24.12.2008 kl. 02:30
Gleðileg Jól.
Offari, 24.12.2008 kl. 10:27
Gleðileg Jol gamli.
Jónas Jónasson, 25.12.2008 kl. 18:39
Þú hlýtur að eiga við Offara, samkvæmt myndinn er hann gamall og ljótur, ég hef einnig staðið hann að því að vera orðljótan. Hinsvegar er ég ávallt jafn ungur og sprækur.
Ástþór Magnússon Wium, 25.12.2008 kl. 19:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.