Færsluflokkur: Heimspeki
11.4.2009 | 00:27
Sjóðasukk Borgarahreyfingarinnar
Málbyssur Borgarahreyfingarinnar m.a. Friðrik Þór fara mikinn í að blekkja almenning á bloggsíðum og segja hreyfinguna starfa án styrkja frá stórfyrirtækjum og án nokkurra annarra hagsmunatengsla.
Því miður er þetta ekki rétt, Borgarahreyfingin er nákvæmlega jafn spillt og gamla flokkakerfið.
Formaður þessarar hreyfingar Herbert Sveinbjörnsson var staðinn að því að vera í framboðsferð úti á landi þegar vinnuveitandinn, Ríkisútvarpið launadeild, hélt að hann vera í vinnunni enda á fullum launum frá þeim.
Ég ræddi við Herbert í síma í gegnum skiptiborð RÚV og þegar hann áttaði sig á að búið var að afhjúpa hvernig hann hafði þarna seilst ofaní vasa almennings og látið þjóðina borga sér laun í framboði, þá skellti hann á símanum og kokkuð var upp fréttatilkynning að Borgarahreyfingin væri hætt leiðtogadýrkun og Herbert hætti hann að koma fram fyrir Borgarahreyfinguna opinberlega.
Annar frambjóðandi Borgarahreyfingarinnar, Þráinn Bertelsson er einnig á ríkisjötunni, á launum frá ríkissjóði í framboði, en Þráinn fær 1,8 milljón í "heiðurslaun" frá Alþingi fyrir þetta ár, árið 2009! Í stað þess að nota tímann til að skrifa menningaverk fyrir þjóðina eins og ætlast er til, er Þráinn í framboðsbrölti fyrir Borgarahreyfinguna á fullum launum frá almenningi.
Borgarahreyfingin er byggð á úreltum flokksræðis reglum þar sem mönnum eins og Þránni Bertelssyni, Gunnari Sigurðssyni, Þór Saari og fleirum var stillt í fyrsta sæti án lýðræðis. Ég viðurkenni fúslega að ég féll fyrir fagurgalanum þeirra í upphafi en þegar ég lagði til lýðræðislegar leikreglur var ég borinn út af fundi þeirra. Frægur leikari í landinu varð fyrir svipaðri reynslu, var vísað á dyr með ófrægingarherferð frá aðstandendum Borgarahreyfingarinnar.
Kommúnískar hugsjónir er erfitt að fela til lengdar og þeim sem kynnast Borgarahreyfingunni verður fljótlega ljóst að þar stangast flest á við eðlileg og lýðræðisleg vinnubrögð. Það væri að fara úr öskunni í eldinn að kjósa lýðskrumara Borgarahreyfingarinnar inná þing í komandi kosningum.
Heimspeki | Breytt s.d. kl. 00:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.4.2009 | 08:25
Lýðskrum Borgarahreyfingarinnar
Það er með ólíkindum hverslags lýðskrum veltur uppúr frambjóðendum Borgarahreyfingarinnar. Ekki nóg með að Þór Saari hafi kastað innistæðulausum kosningakarmellum í hungraða þjóð úr sjónvarpssal í síðustu viku, í gær birtist á bloggsíðu hjá talsmanni neytenda pistill eftir Þráinn Bertelssen að Borgarahreyfingin vilji "gott og manneskjulegt þjóðfélag þar sem flestur líður vel og engum er úthýst".
Hafa hin raunveruleg markmið og framganga forráðamanna Borgarahreyfingarinnar farið algerlega framhjá Þránni, þessum frambjóðanda sem settur var í fyrsta sæti á lista í bakherbergi Borgarahreyfingarinnar án þess að kjósendur ráði nokkru þar um. Eða er Þráinn raunverulega svona grænn að hann sér ekki hysmið frá kjarnanum?
Borgarahreyfingin er sprottin úr hugarskoti einstaklinga sem hafa borið út af fundum sínum menn sem styðja lýðræðislegar umbætur til að hér geti risið gott og manneskjulegt þjóðfélag. Að bera menn út af fundum og tala síðan um manneskjulegt þjóðfélag er auðvitað ekkert annað en lýðskrum af versta tagi. Það er ótrúlegt að Þráinn Bertelsson láti hafa sig að því ginningarfífli sem raun ber vitni. En hugsanlega samrýmist þetta kommúnískum hugsjónum hans sjálfs.
Í tvígang báru aðstandendur Borgarahreyfingarinnar mig út af fundum sínum fyrir þær sakir að ég benti á hve hallaði mikið á eina hliðina við val á ræðumönnum og lagði til lýðræðislegri leið. Í þriðja sinn vörnuðu þeir mér inngöngu á fund sinn og höfðu kosningu fundarmanna að engu og blekktu fundargestina með leiksýningu. Í ljós kom að fundir þeirra voru ekkert annað en skipulagðar leiksýningar undir stjórn Gunnars Sigurðssonar leikstjóra.
Í fréttum í síðustu kom síðan fram að Borgarahreyfingin hefur úthýst Magnús Ólafsson leikara og sent út ófrægingarpóst um hann.
Borgararahreyfingin eru samtök öfga vinstri manna sem starfa eftir aðferðafræði sem sótt er í smiðju gömlu sovétríkjanna en þar stunduðu kommúnistar svipaðar leiksýningar og Gunnar Sigurðsson leikstjóri gerir nú undir hatti sem hann kallar "Borgarahreyfingin" til að blekkja Íslenskan almenning í krumlur Íslenskra fasista og kommúnista.
Heimspeki | Breytt s.d. kl. 08:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
22.3.2009 | 00:41
Lýðvarpið: Opið hús sunnudag kl. 14-18
Verið velkomin að kíkja við til okkar og skoða Lýðvarpið, nýja útvarpsstöð sem hefur útsendingar á FM100.5 mánudag kl. 07 með Íslandsklukkunni.
Fréttavaktin verður síðan daglega kl. 12-14 þar sem þú færð fréttirnar frá öllum fjölmiðlunum og óritskoðaðar fréttir frá Ríkisútvarpinu!
Vefsíðan er www.frettavakt.is og útvarp Lýðvarpsins á FM100.5
Opið hús sunnudag: Verið velkomin að kíkja við í kaffi til okkar kl. 14-18 í Vogasel 1, 109 Reykjavík sunnudag. Síminn er: 4500500.
Heimspeki | Breytt s.d. kl. 00:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.3.2009 | 17:51
Grefur auglýsingasjónvarpið Skjár1 undan lýðræðinu?
Nokkur umræða hefur verið um auglýsingamarkað ljósvakamiðla. Skjár1 sagðist vera almennt sjónvarp er höfði til allra landsmanna og efndu til undirskriftarsöfnunar til að fá RÚV út af auglýsingamarkaði.
Það kom því mjög á óvart þegar ég í dag ræddi við Sölva Tryggvason og aðstoðarkonu hans um hversvegna Lýðræðishreyfingin var sniðgengin í umræðuþætti þeirra um síðustu helgi, en þar var rætt við helstu stjórnmálaöfl landsins og tveimur nýjum stjórnmálahreyfingum gefin tækifæri að kynna sín stefnumál.
Sölvi svaraði því til að Skjár1 væri auglýsingasjónvarp og þessvegna bæru þeir engar skyldur í þessu sambandi, þeim væri frjálst að taka til umfjöllunar hvert það stjórnmálaafl sem þeim þóknast án tillits til annarra.
Þetta er auðvitað algerlega á skjön við útvarpslögin, sem einnig gildir fyrir sjónvarp, en þar segir: "skulu í öllu starfi sínu halda í heiðri lýðræðislegar grundvallarreglur. Þeim ber að virða tjáningarfrelsi og stuðla að því að fram komi í dagskrá rök fyrir mismunandi skoðunum í umdeildum málum."
Þegar ég benti Sölva á þessa grein útvarpslaga hafði hann á orði að við kæmust ekkert í þátt hjá sér með slíkri frekju, hann réði því hvaða menn og málefni yrði fjallað um.
Eiga fjölmiðlar sem þessir rétt á sér í lýðræðisþjóðfélagi eða er slík geðþótta umfjöllun einstakra fjölmiðlamanna til þess fallin að blekkja þjóðarsálina og grafa undan lýðræðinu í aðdraganda kosninga?
Sjá nánar um Lýðræðishreyfinguna á www.lydveldi.is
Tilnefna frambjóðendur á www.austurvollur.is
Heimspeki | Breytt s.d. kl. 17:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)