Færsluflokkur: Fjölmiðlar

Hreinn Loftsson að missa lögmannsréttindin?

Sú saga gengur um á sumum fjölmiðlanna að vegna yfirvofandi gjaldþrots DV leiti Hrein Loftsson nú dyrum og dyngjum að kaupendum á DV því annars sé líklegt að hann fari í persónulegt gjaldþrot og missi lögmannsréttindin.

Minni á greinar sem ég skrifaði nýlega um gjaldþrota DV, kæru til Ríkislögreglustjóra vegna fjármálamisferlis DV og hvernig þetta sukk er fjármagnað með innistæðum almennings af Sparisjóði Siglufjarðar:

 


Múgsefjun í kjörklefa vandamálið

Áhugaverð ummæli ummæli eru höfð eftir utanríkisráðherra Noregs um ástandið á Íslandi.

Það er áhyggjuefni hvernig eðlileg framganga lýðræðis er hindruð á Íslandi með múgsefjun, flokkadýrkun og misnotkun fjölmiðla. 

„Íslendingar hafa í hverjum kosningunum á fætur öðrum frá árinu 1991 kosið stjórnmálastefnu sem hefur leitt til þess að landið er nú í þessari stöðu. Ég viðurkenni, að Íslendingar sáu þetta ekki allir fyrir en í lýðræði ber fólkið sjálft ábyrgð á þeirri stjórnmálastefnu sem það kýs. Ég vil ekki að norskir skattgreiðendur verði látnir borga þennan brúsa..." segir Jonas Gahr Störe utanríkisráðherra Noregs.

Beint og milliliðalaust lýðræði myndi á svipstundu hreinsa út spillingu á Alþingi og grafa undan ægisvaldi fjórflokkanna. Fólkið í landinu færi þá sjálft með völdin og fýlugjarnir stjórnmálamenn gætu setið heima án þess að það hefði veruleg áhrif á vegsæld þjóðarinnar.

Ég minni á stefnuskrá Lýðræðishreyfingarinnar sem bauð þér frelsi undan oki fjórflokkanna:

Þitt atkvæði á þing!

 

Lýðræðishreyfingin veitir þér frelsi:


  • Þú færð atkvæðisrétt á Alþingi: Þú getur tekið þátt í öllum meiriháttar ákvörðunum Alþingis í gegnum rafrænt Almannaþing óskir þú þess. Láttu ekki blekkja þig til að afsala fullveldi þínu næstu fjögur árin til flokkseigendafélaga og mútuþægra stjórnmálamanna.
  • Sækjum þýfið sem útrásarvíkingarnir stálu af þjóðinni: Við viljum nota öll tiltæk lög m.a. hryðjuverkalög eins og bretar gerðu gegn Landsbankanum, til að gera útrásarvíkingana óstarfhæfa hvar sem er í heiminum og fá þá framselda hingað til lands. Þetta viljum við gera strax því þá byrja ormagryfjurnar þeirra að opnast fyrir alvöru. Við viljum síðan sækja þá fleiri hundruð milljarða sem þeir stálu af þjóðinni. 
  • Markaðssetjum Ísland sem land tækifæranna: Við viljum setja upp markaðsskrifstofu með 200 manna vandlega völdu fólki úr atvinnuleysisskránni til að markaðssetja Ísland um allan heim og laða hingað til lands víðtæka erlenda starfsemi sem skapar störf og gjaldeyristekjur.
  • Jöklabréfin sem fjárfestingasjóður: Við viljum umbreyta jöklabréfunum í innlendan fjárfestingasjóð atvinnulífsins til að minnka þrýstingin á krónuna og fá erlendu fjárfestana með í uppbyggingingarstarfið.
  • Hagræðing án skattahækkana: Við viljum hagræða í stjórnsýslunni til sparnaðar um leið og atvinna og tekjur eru auknar með nýrri atvinnustarfsemi. Við viljum ekki skattleggja venjuleg heimili sem nú þegar berjast í bökkum.
  • Endurbyggjum bankakerfið með erlendri þátttöku: Við viljum fá hingað til lands færustu hagfræðinga heims eins og George Soros til aðstoðar við endurskipulagningu hagkerfisins og tengja fjármálastofnanir okkar við erlenda fjármálamakraði. Þannig komum við í veg fyrir annað bankahrun.
 
mbl.is Ekki frekari lán til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sigga liggur kylliflöt fyrir Jón Ásgeir og vill enga krítík!

Sigga Lund útvarpskona"Framreiðum léttmeti og gamanefni" segir einn starfsmanna Jóns Ásgeir Jóhannessonar hjá 365 miðlum, sem hefur umsjón með því sem þau segja vera "vinsælasti morgunþáttur landsins".

Sigga Lund Hermannsdóttir er einn umsjónarmanna Zúúber á FM957. "Það eru allir orðnir hundleiðir á krepputali" sagði Sigga í viðtali við visir.is en þessari ágætu konu dreymir um að "fara í kynfræðinginn" samkvæmt öðru viðtali í DV. "Sigga er óhrædd að segja skoðanir sína, þvert á þá Gassa og Svala" segir í sama viðtali.

Mér þætti gaman að vita um skoðanir Siggu. Eitt er víst að hún vill ekki heyra minnst á neina krítík á yfirmann sinn Jón Ásgeir Jóhannesson. Fyrir honum liggur Sigga kynfræðingur kylliflöt.

Ég hef einstaka sinnum sent starfsfólki fjölmiðla, þeim sem starfa á fréttastofum og í dagskrárgerð, netpóst þegar mér hefur fundist eitthvað eiga erindi til þeirra. Ég viðurkenni alveg að ég slæ ekki öllu uppí grín eins og Sigga, ég geri ekki grín að því hvernig Jón Ásgeir "eigandi" Siggu mergsaug sjóði landsmanna og kom landinu á hausinn. Mér finnst það heldur ekkert fyndið hvernig hann heldur úti fjölmiðlum eins og DV um gjaldþrota fyrirtækja pýramída kórónað með Hreinum lepp.

Jón Ásgeir TöframaðurEn Sigga blessunin lifir í öðrum heimi en við flest hin sem þurfum að súpa seyðið af fjárglæfrum eigenda hennar sem fluttu fjölmiðlana úr gjaldþrota Baugi eins og hendi væri veifað með ótrúlega snjöllum fjármálatöfrabrögðum. Sigga hrærist á milli fjölmiðla eigendanna og reynir þar að slá á léttari strengi til að fá landsmenn til að gleyma syndum feðranna. Helst þannig að það gleymist að lögsækja þessa menn og sækja þýfið sem þeir stálu af þjóðinni.

Sigga hafði samband í dag eftir að ég sendi ádeilu á hana um fjölmiðlana sem hún starfar fyrir:
"Geturðu tekið mig út af þessum mail lista...
Vil ekki frá frekari sendingar frá þér.!" 


Sigga og hennar samstarfsmenn eru nú ekki vanir að spyrja mig þegar þeir bera gróusögur um mig á torg í útsendingum sínum og sorpritum. Þeim er víst eitthvað illa við að ég hafi skoðanir á fjárglæfrum eigenda þeirra.

Nú skora ég bara á lesendur að senda siggu línu: sigga.lund@365.is

p.s. Mér skilst að enginn Haugsmiðlanna hafi fjallað um hvernig Jóhannes Jónsson kokkaði bókhaldið nú eftir hrun til að senda eignarhald á 200 milljón króna lúxus villu úr landi í erlendan sjóð sem engir kröfuhafar geta gengið að.  Ætli Sigga hafi skoðun á þessu?
Ritstjóri DV lúffaði aftur fyrir töframönnum auðvaldsins. Lýgur að lesendum!


Ritstjóri DV lúffaði aftur fyrir töframönnum auðvaldsins. Lýgur að lesendum!

Sorpritstjórinn sem lúffaði

DV þegir um gjörninginn og í Sandkorni er reynt að slá ryki í augu almennings

Drottningarviðtal DV við einn huldumanninn bakvið gjaldþrota fyrirtækjapýramídann sem rekur sorpritið féll heldur betur um sjálft sig í dag þegar Morgunblaðið birti umfjöllun um hvernig Jóhannes í Bónus færði tvö hundruð milljóna króna fasteign með bókhalds töfrabrögðum úr landi í öruggt skjól undan kröfuhöfum Baugs.

DV hefur þagað um þennan gjörning enda vill Jóhannes ekkert ræða um þetta mál og auðvitað eins og háttur er með slík drottningarviðtöl fékk hann textann til yfirlestrar áður en sorpritið bar yfirklórið á torg.

DV þagði einnig í morgun um töfrabrögð Jóhannesar. Það var ekki fyrr en tæplega eitt hundrað manns höfðu lýst hneykslan á vefnum eyjan.is að eitthvað heyrðist í DV og þá með Sandkorni undir fyrirsögninni "JÓI Í BÓNUS ER NÁGRANNI TIGER WOODS".

í Sandkorni DV er reynt að slá ryki í augu almennings og sagt að blaðið hafi sagt ítarlega frá þessu í forsíðu umfjöllun í júní 2009. Þetta er hinsvegar helber lýgi ef marka má vef DV því þar ekki minnst einu orði á það hvernig Jóhannes kom þessari fasteign undan kröfuhöfum.

Eina greinin sem finnst á vef DV frá júní 2009 þar sem minnst er á fasteign Jóhannesar í Flórída er undir fyrirsögninni: "EGGERT Á FIMM HÚS Á FLÓRÍDA". DV telur síðan upp fleiri manns, þar á meðal Í SMÁU LETRI INNÍ GREININNI nefndan Jóhannes í Bónus, sem eigi fasteignir á Flórída. Nú eiga margir Íslendingar auðvitað fasteignir á Flórída og annarsstaðar erlendis en fæstir þeirra sitja í 200 milljóna króna villu sem send var úr landi og stungið undan kröfuhöfum með bókhaldstöfrabrögðum.

Þessir menn ættu kannski að fá einhverskonar Eddu verðlaun fyrir töfralistir sínar. Þeir kunna að flytja fleira en faasteignir, þeir fluttu sjálft útgáfufélag DV undan kröfuhöfum, en það félag virðist hreinlega hafa horfið úr bókum Baugs einnig með bókhaldstöfrabrögðum.

Nú er DV rekið af þremur gjaldþrota hlutafélögum sem öllum er haldið uppi með bókhaldsbrellum, uppáskrifað af hinu þekkta alþjóðlega endurskoðendafyrirtæki Deloitte og sukkið er fjármagnað af Sparisjóði Siglufjarðar með innistæðum grandvaralausra Siglfirðinga. Þessi banki er í eigu Afl sparisjóðs sem er svo í eigu Arion banka sem var endurbyggður eftir hundruð milljarða framlög ríkissjóðs til borga innistæðueigendum til baka eftir að Bónus menn og fleiri ryksuguðu bankann. Verður Sparisjóður Siglufjarðar næstur?

Sjá meira hér:

Gjaldþrota DV fjármagnað af Sparisjóð Siglufjarðar

Blaðamannafélag Íslands styður mannorðsmorðingja

DV gjaldþrota


mbl.is Setti hús í bandarískt félag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gjaldþrota DV fjármagnað af Sparisjóð Siglufjarðar

Sparisjóður SiglufjarðarInnistæður einstaklinga hjá Sparisjóði Siglufjarðar eru notaðar til að fjármagna rekstur sorpblaða m.a. DV sem rekið er af gjaldþrota pýramídaþrenningu undir stjórn hæstaréttarlögmannsins Hreins Loftssonar, sem margir telja sitja sem lepp fyrir Jón Ásgeir Jóhannesson sem færði útgáfu DV úr Baugi með bókhalds töfrabrögðum skömmu fyrir gjaldþrot þess félags.

Útgáfufélag DV Birtingur ehf er í eigu Hjálmur ehf sem er svo aftur í eigu Austursel ehf. Daglegur rekstur sorpritsins er fjármagnaður af Sparisjóð Siglufjarðar.

HreinnJonAsgeirBirtingur er eignarlaust félag og í raun gjaldþrota en haldið uppi með bókhaldsbrellum kokkuðum af þessum fyrrum Baugsmönnum. Næst upp í pýramídanum kemur Hjálmur ehf sem einnig er algerlega eignarlaust og lestina rekur svo Austursel ehf. Aftur sama sagan það félag er einnig gjaldþrota og eignalaust. Yfir þessu trónir svo leppurinn Hreinn sem í hjáverkum hefur haft af því atvinnu að starfa sem lögmaður fyrir opinbera aðila.

Þótt útgáfa DV sé gjaldþrota og allur fyrirtækja pýramídinn eignalaus, þá stöðvar það ekki spunameistara útrásarvíkinganna að fjármagna þennan vonlausa rekstur með innistæðum grandvaralausra Siglfirðinga. 

Sorpritstjórinn sem lúffaðiSparisjóðurinn lætur einnig sem vind um eyru þjóta að ágætur lögfræðingur hefur kallað blaðamenn DV síbrotamenn á sviði ærumeiðinga enda kemur nánast mánaðarlega nýr dómur þar sem sorpritstjórn blaðsins hefur farið á svig við faglega blaðamennsku og gerst brotlegir við almenn hegningarlög. 

Hinsvegar hafa verið vandkvæði á því að fá dæmdar miskabætur greiddar því hvorki útgáfufélagið Birtingur né blaðasnápar þeirra virðast geta borgað. Hreinn Loftsson og Jón Ásgeir sitja stikkfrí frá öllu saman með þrjú eignarhaldsfélög sem stuðpúða!

Gæti ástæða þess að spilað er svo óvarlega með sparifé Siglfirðinga verið sú að eigandi Sparisjóðs Siglfirðinga er Afl Sparisjóður sem svo er í eigu Arion banka.

FinnurOlafurHver á svo þann banka er stóra spurningin og hvernig vogunarsjóðirnir sem þar eru sagðir standa á bakvið tengjast meintum bankaræningja Ólafi Ólafssyni, Baugsmönnum og öðrum samherjum þeirra með ryksuguðu Íslenskar peningahyrslur og settu þjóðfélagið á hausinn.   

Sjá einnig: 

Blaðamannafélag Íslands styður mannorðsmorðingja


mbl.is Upplýst verði um eignarhald fyrirtækja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blaðamannafélag Íslands styður mannorðsmorðingja

Áskorun Blaðamannafélags Íslands til stjórnvalda um að síbrotamenn sem fara offari í ærumeiðingum og mannorðsmorðum njóti friðhelgi gegn dómstólum er hneykslanleg.

Sorpritstjórinn sem lúffaðiÞeir blaðamenn sem hafa fengið á sig dóma undanfarin ár og mánuði eru nánast undantekningarlaust starfsmenn DV eða fjölmiðla Hreins Loftssonar og Jóns Ásgeirs Jóhannessonar sem reka þessa fjölmiðla um pýramída af gjaldþrota fyrirtækjum haldið uppi með bókhaldsblekkingum.

Áskorunina á stjórnvöld má líklegast rekja til þess að stjórn Blaðamannafélagsins skipar m.a. atvinnulaus blaðamaður sem gerir nú hosur sínar grænar fyrir eigendum sorpmiðlanna, en í stjórn og varastjórn B.Í. eru einnig starfsmenn þessara öfgamiðla.

Í stað þess að veita mannorðsmorðingjum DV friðhelgi ættu stjórnvöld að sjá til þess að löggæslan virki hegningarlögin til að stemma stigu við þessu vaxandi þjóðfélagsmeini. Þeir sem gera rekstur sinn og atvinnu út á ærumeiðingum eiga að sæta fullri ábyrgð og þyngstu refsingu með fangelsi eins og ætlast var til þegar hegningarlögin voru sett á Alþingi.

Áhyggjuefni er hve lögreglan hefur verið slök í að virkja hegningarlögin vegna ærumeiðinga. Nýlegt fordæmi Ríkissaksóknara í opinberu refsimáli vegna rógburðar gefur hinsvegar hinsvegar von um að löggæslan sé að vakna af sínum þyrnirósarsvefni, enda er það þeirra skylda að vernda borgara landsins gegn ómaklegum árásum og virkja hegningarlögin gegn skrímslum Blaðamannafélags Íslands.

Óábyrg skrif um náungann geta haft alvarlegar afleiðingar fyrir þann sem er rægður og fjölskyldu hans. Hver man ekki eftir kennaranum sem svipti sig lífi daginn sem DV rakkaði hann niður á forsíðu. Þjóðinni ofbauð og ritstjórarnir flúðu úr starfi.

Ég hef sjálfur mátt þola reglubundnar ærumeiðingar af hálfu DV. Undanfarna mánuði hafa þeir birt lýgi eftir lýgi um mína persónu og eða athafnir. Þeir hafa dregið uppúr ræsum borgarinnar gróusögur sem hafa enga stoð í veruleikanum. Það virðist nægjanlegt að veikir og blankir einstaklingar sækist í hundrað þúsund kallinn sem DV borgar fyrir svokallað "Fréttaskot" til að gera hvaða blaður sem er að heilögum sannleika á síðum blaðsins.

Einelti DV gegn mér hefur gengið svo nærri eiginkonu minni að hún þolir ekki við á landinu. Eitt skiptið er ég hafði verulegar áhyggjur af því hve nærri þetta gekk fjölskyldunni mætti ég með prest á heimili ritstjóra blaðsins. Í stað þess að taka tillit til aðstæðna hélt þetta hjartalausa skrímsli áfram og skrifaði sérstaka frétt í blaðið um þessa heimsókn mína.

Mér er kunnugt um fleiri tilfelli. Í einu slíku fóru DV menn enn eina ferðina offari í umfjöllun sem átti lítið skylt við faglega blaðamennsku. Illrætin og ærumeiðandi skrif þeirra höfðu svo mikil áhrif á einstakling sem tengdist fórnarlambinu að hann tók eigið líf.

Í okkar litla þjóðfélagi eigum við ekki að sætta okkur við starfsemi óábyrgra fjölmiðla sem gera útá það að rakka niður náungann. Það er enginn að ætlast til þess að fjölmiðlar þegi yfir spillingu í stjórnkerfi okkar eða viðskiptalífi. Hinsvegar hlýtur það að vera lágmarkskrafa að blaðamenn haldi sér við staðreyndir og kanni sannleiksgildi þess sem þeir og viðmælendur þeirra bera á torg áður en slíkt er sett á prent og skráð á spjöld sögunnar.
mbl.is Skora á stjórnvöld að breyta prentlögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

DV gjaldþrota

Kæra fjármálamisferli útgefanda DV, kennitöluflakk og viðskiptablekkingar

Ríkislögreglustjórinn – Efnahagsbrotadeild
Skúlagata 21, 101 Reykjavík. Símbréf: 4442501

15. febrúar 2010

Hreinn kennirÍ tengslum við undirbúning stefnu gegn útgefendum DV vegna meiðyrða kom í ljós að svokallaður eigandi blaðsins hæstaréttarlögmaðurinn Hreinn Loftsson, sem sterkur orðrómur er um að sé þarna sem leppur fyrir Jón Ásgeir Jóhannesson, heldur DV úti um pýramída byggðan upp af þremur gjaldþrota einkahlutafélögum að því virðist til að komast hjá því að taka ábyrgð á starfseminni.

Eftir stutta rannsókn á bakgrunni og fjárhag útgefanda DV er ljóst að rekstrinum er viðhaldið með grófum viðskiptablekkingum og kennitöluflakki.

Ársreikningar félaganna Birtings útgáfufélags ehf, Hjálmur ehf og Austursel ehf einkennast af blekkingum uppáskrifuðum af alþjóðlega endurskoðendafyrirtækinu Deloitte hf. Þegar reynt var að spyrjast fyrir um bókfærðar loftbólur hjá Einari Hafliða Einarssyni endurskoðanda hjá Deloitte kom svo mikið fát á manninn að hann skellti á símanum.

Nánast eina eign ofangreindra félaga er viðskiptavild kallað "útgáfuréttur" hjá Birtingur ehf uppá tæpar tvö hundruð milljónir króna. Slík viðskiptavild er auðvitað nánast einskis virði hjá félagi sem tapaði 150 milljónum króna við síðasta uppgjör og á þriðja tug milljóna árið áður. Þá eru bókfærðar útistandandi viðskiptaskuldir uppá 152 milljónir króna en stór hluti þess eru ónýtar kröfur. Endurskoðandinn veit fullvel að þessar rúmar 302 milljónir eru  loftbólur og í engu samræmi við raunveruleg verðmæti. Hér er verið að viðhalda þeim ólögmætu bókhaldsbrellum sem viðgengust í Baugi en þaðan virðist félagið Hjálmur ehf, eiganda DV útgáfufélags og Birtings hafa færst yfir til Austursel ehf fyrirtækis Hreins Loftssonar árið 2008 með einhverskonar töfrabrögðum.

Undirritaður er upplýstur um að aðrir sem hafa á síðastliðnu ári fengið dæmdar miskabætur í meiðyrðamálum gegn útgefendum DV hafa síðan verið í vandræðum með að fá bæturnar greiddar. Þekktur lögfræðingur ritaði á síðasta ári grein í Fréttablaðið (22 ágúst 2009) þar sem hann kallaði aðstandendur DV "Síbrotamenn á sviði ærumeiðinga" en þá hafði blaðið fengið sjö dóma á 9 mánuðum. Sorpritstjórinn sem lúffaði

DV virðist fyrir stuttu hafa verið gefið út af Útgáfufélag DV ehf og Dagblaðinu Vísir ehf og fært á milli þesara fyrirtækja með kennitöluflakki. Hreinn Loftsson og félagar virðast hafa sveiflað töfrasprotanum enn eina ferðina og síðast fært útgáfuna inní félagið Birtingur útgáfufélag sem nú stefnir í þrot eins og fyrirrennarar sínir. Undirritaður þarf því að stefna tveimur eða þremur útgáfufélögum vegna meiðyrða síðustu ára. Hinsvegar kemur upp það vandamál að DV útgáfufélag og Dagblaðið Vísir eru bæði gjaldþrota og nú afmáð úr hlutafélagaskrá. Þar sem huldumaðurinn sem stendur bakvið útgáfuna felur sig í dag á bakvið 3 eignalaus félög verður ekki séð hvernig hægt er að ná fram réttvísi gegn DV eða fá kröfur greiddar. Í síðasta ársreikingi núverandi útgáfufélags DV er ört hækkandi og einn stærsti kosnaðurliðurinn dráttarvextir sem sýnir vaxandi vanskil!  Þá er ritstjóri blaðsins Reynir Traustason skráður á vanskilaskrá Lánstraust í dag og því ljóst að hann er ekki borgunarmaður fyrir sínum skuldum.

Ótækt er að líða það að þeir sem hafa fjárhagslegan ávinning af mannorðsmorðum með rógi og lygaþvælu einelti gegn einstökum persónum eins og undirrituðum komist undan réttvísi og ábyrgð með slíkri svikamyllu sem útgáfa DV er. Þessvegna er þess krafist að Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra stöðvi áframhaldandi rekstur þessa gjaldþrota sorprits og hlutist til um að opinber rannsókn fari fram á ólögmætu hátterni Hreins Loftssonar í tengslum við útgáfu-pýramídann. Full þörf er á að rannsaka hvernig útgáfa DV var færð með töfragjörningum úr Baugi sem nú er í gjaldþrotameðferð en ekki er hægt að lesa úr ársreikningum ofangreindra félaga að raunveruleg verðmæti hafi verið greidd til Baugs.

Einnig vakna upp spurningar um hvort Hreinn Loftsson geti áfram starfað sem hæstaréttarlögmaður eða fyrirtæki hans veitt opinberum aðilum lögfræðiþjónustu með slíkan slóða af gjaldþrotum og viðskiptablekkingum í farteskinu.

Virðingarfyllst,
Ástþór Magnússon


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Óviðeigandi og sóðaleg níðskrif DV um útvarpsstjóra

Sorpritstjórinn sem lúffaðiDV lætur það vaða hvortsem það er lýgi eða hálfsannleikur spunameistaranna. DV slorið er étið uppúr ræsum bloggsins og gróusögum á börum bæjarins og borið á torg fyrir þjóðina. Sorann kalla þeir síðan dagblað og fólkið sem vinnur þar titlar sig "blaðamenn". 

Pistill Eimreiðarinnar á DV í dag á lítið skylt við blaðamennsku. Þar lætur sóðabloggarinn Teitur Atlason gammin geisa og hakkast nú á útvarpsstjóranum Arnþrúði Karlsdóttur. Segir hana rífast um allt við allt og alla. Það vekur athygli að sóðapésinn á DV fullyrðir að Arnþrúður sé að rífast við Óla blaðasala, en ég veit nú ekki betur en sá ágæti maður sé löngu kominn undir græna torfu. 

Þá fullyrðir DV í dag á vef sínum að Arnþrúður sé göldrótt. Skýringin er sótt í vefkannanir á Sögu, en asninn á DV er auðvitað svo vitlaus að hann skilur ekki að tölvur uppfæra oft tölfræði sína á nokkra mínútna fresti. Þannig er t.d. bloggið á Morgunblaðinu uppfært. Það gerist ekki á sömu sekúntunni.

Ég skil vel að DV menn eru súrir útí velgengni Arnþrúðar á Útvarpi Sögu. En menn þurfa samt að gæta velsæmis þótt migið sé á þá í samkeppninni. 


Stríðsglæpamaður misnotar Morgunblaðið

Mér verður hreinlega flökurt að lesa ruglið úr Davíð Oddsyni í pistli Morgunblaðsins í dag. Er það ekki lágmarkskrafa að hinn Íslenski stríðsherra haldi ekki áfram að skíta á sig á síðum blaðsins.

barn eftir loftárás ÍrakÍ pistli sínum reynir Davíð að réttlæta innrásina í Írak og stuðning Íslands við bóðbaðið. Segir opinbera rannsóknarnefnd í Bretlandi vera á vegum þingmanna sem "þorðu ekki í Blair meðan hann var ennþá á staðnum" og sem eru að missa þingsæti sín í næstu kosningum. Hvílíkt fáranlegt bull!

Þá blandar hinn blóðþyrsti ritstjóri Morgunblaðsins saman í einn pott forsendum manna fyrri aldar fyrir seinni heimstyrjöldinni og segir innrásina í Írak hafa snúist um það sama. Fáranleg rökleysa, enda vita nú flestir sem ekki eru blindir og heyrnarlausir að innrásin Írak snérist um völd yfir olíulindum.

loftáras ÍrakÞá segir hinn afvegaleiddi ritstjóri nánast berum orðum að morð á 300,000 Kúrdum hafi réttlætt að hann og félagar hans í stjórnunarstöðum á vesturlöndum hafi látið myrða yfir tvær milljónir saklausra barna og borgara í Írak með miskunnarlausu viðskiptabanni sem stöðvaði m.a. innflutning á mikilvægum lyfjum svo og blóðugum loftárásum sem sendu blómlegt samfélag aftur til steinaldar. Þá er hvítblæði og nýfæddir vanskapningar algengir í Írak í dag vegna úraníumhúðar á sprengjuoddum. Það liggur alveg ljóst fyrir að hér var um að ræða einn grófasta stríðsglæp mannkynssögunnar.

Ég vona að Alþingi hafi þor til að setja upp eigin rannsóknarnefnd að fyrirmynd Breta til að kafa ofaní þann skandal að Davíð og Halldór hafi dregið okkur Íslendinga ofaní þetta blóðbað. Síðan á að senda skáldið á Morgunblaðinu á Litla Hrauni fyrir sinn þátt í fjöldamorðinu. Kannski gamli klefinn minn sé laus þar sem ég var látinn dúsa fyrir að mótmæla stuðningi Íslands við innrásina.

Aðeins með því að taka lögleysuna föstum tökum getum við lagt hornstein að heilbrigðum leiðtogum og friðsömum heim.


Nornaveiðar kerlinganna

Það er ekki konum til framdráttar þegar kerlinganornir á fjölmiðlum misnota aðstöðu sína.  Hér eru þrjú dæmi um slíkt:

Ritskoðun1. Elín Hirst. Þegar ég kom í viðtal á Stöð2 í aðdraganda forsetakosninga árið 1996 var ég í bókstaflegri merkingu hakkaður niður af Elínu Hirst. Í nornaveiðum sínum bar Elín á mig ýmsar grófar aðdróttanir sem áttu ekki við rök að styðjast. Þetta var sent út í opinni dagskrá. Þegar kom að mér að svara fyrir mig lét Elín læsa útsendingunni þannig að aðeins þeir sem höfðu greitt áskrift Stöðvar 2 gætu hlustað á svörin mín. 

Kommúnistar í Kína2. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. Margir hafa deilt á hlutdræg vinnubrögð Þóru Kristínar þegar hún starfaði á Morgunblaðinu. Ég kynntist þessu þegar ég mótmælti því að Borgarahreyfingin hafði látið bera mig út af fundum sínum með ofbeldi fyrir þær sakir að leggja til lýðræðisleg vinnubrögð. Flestir fjölmiðlar sem fluttu fréttir af fundinum sögðu einnig frá mótmælum á fundinum. Þóra Kristín hinsvegar sneiddi algerlega hjá mótmælum mínum og lofsöng þess í stað í sinni frétt af sama fundi þá ólýðræðislegu hreyfingu sem sigldi mánuðum saman undir fölsku flaggi í Íslensku þjóðlífi.  Frétt Þóru var þannig í litlu samræmi við það sem gerðist á þessum fundi. Á endanum fengu lýðskrumarnir nokkra vanhæfa einstaklinga kosna á þing með dyggri aðstoð Þóru sem lofsöng lýðskrumarana mánuðum saman á vef og síðum Morgunblaðsins, svo og formanns hópsins sem starfaði á RÚV eða sama fyrirtæki og Egill Helgason sem einnig misnotaði sína aðstöðu til blekkja þjóðina og ota lýðskrumurunum inná þing.

witch_flying_23. Agnes Bragadóttir.  Fyrst man ég eftir Agnesi þegar ég hringdi á fréttastofu Morgunblaðsins vegna einhvers máls Friðar 2000. Það fór hálfgerður hrollur um mig þegar ég talaði við fréttastjórann á vakt sem í þetta skiptið var Agnes í miklum nornaham. Í apríl s.l. í aðdraganda kosninga mætti ég svo í viðtal í Zetu Morgunblaðsins þar sem Agnes sat á kústskaftinu ásamt Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur og augljóslega ætluðu að efna til "grillveislu" með mig sem svínið. Vinur minn Sverrir Stormsker skrifaði pistil sem lýsir þessu ágætlega, bendi ykkur á að kíkja á hann: "Ástþór í stórfurðulegu viðtali"

Íslenskir fjölmiðlar þurfa endurskoðun og uppstokkun. Þeir þurfa að vera óhlutdrægur spegill samtíðar. Vettvangur mismundandi skoðana og lýðræðislegrar umræðu.

Þegar einstakir fréttamenn, stjórnendur eða eigendur fjölmiðla misnota aðstöðu sína til ota sínum tota eða vina sinna eru þeir að grafa undan þjóðfélaginu sem á endanum mun hrynja eins og við höfum séð gerast á Íslandi. Nýtt Ísland er byggt á sandi nema breyting verði á. Konur Íslands ættu að sameinast um að byggja nýtt og heiðarlegt Ísland og standa vörð um óhlutdræga fjölmiðlun.


mbl.is Ofbýður ástandið á ritstjórnum landsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband