Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál
31.10.2010 | 13:23
Kexruglað Alþingi - Það étur engin einhverja heimreið sjálfstæðishetju þjóðarinnar!
Ég tek undir með bændunum á Vestfjörðum sem í grein á Pressunni fjalla um bruðl stjórnvalda vegna 2ja aldar afmælis Jóns Sigurðssonar.
Alþingi hefur afgreitt frá sér kexrugluð fjárlög hlaðin fjölda óþarfa gæluverkefna meðan 1200 fjölskyldur bíða úti í kuldanum klukkutímum saman eftir vikulegri matarúthlutun.
Í fjárlögum er að finna fleiri liði uppá tugir milljóna vegna þessa afmælis. Á annað hundrað milljónir á þessu ári. Hvílík veisla til viðbótar milljörðum bruðlað í alskyns aðra vitleysu. Afmælisbarnið hlýtur að snúa sér í gröfinni í hneykslan yfir forgangsröðun fjárlaga.
Það eru lágmarks mannréttindi að hafa til hnífs og skeiðar. Það étur engin einhverja heimreið sjálfstæðishetju þjóðarinnar.
Ég vil á Stjórnlagaþing og leggja þar fram tillögur að nýrri stjórnskipan. Ég vil einfaldara og skilvirkara kerfi en nú er. Framboðsnúmer mitt er: 7176. Meira hér: www.austurvollur.is
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 13:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.10.2010 | 13:59
Hvað ætlar umboðsmaður skuldara að gera í þessu máli?
Íslandsbanki fékk í gær stuðning héraðsdómara til að ofsækja fjölskyldu með 58 milljón króna kröfu vegna gengisláns sem bankinn fékk afhent frá ríkisstjórninni fyrir aðeins 21 milljón við yfirtöku Glitnis.
Þetta er enn eitt Íslenska bankasvindlið. Hvaða rök eru fyrir því að dæma fólk til að greiða að fullu upphæð sem bankinn yfirtók með 47% afslætti frá þjóðinni?
Þessi dómur undirstrikar að Íslenskt stjórnkerfi ónýtt, frá Alþingi þar sem spilltar flokkstíkur verma sætin og niður stofnanir og dómstóla þar sem pólitískt skipaðir fulltrúar níðast á þjóðinni.
Þurfum að byggja stjórnkerfið upp frá grunni. Ég vil á Stjórnlagaþing og varpa spillingunni á dyr. Nánar hér: www.austurvollur.is
Fleiri sækja um greiðsluaðlögun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 14:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
30.10.2010 | 11:59
Íslenskur dómstóll lögleiðir bankarán
Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í gær fjölskyldu til að greiða Íslandsbanka tæpar 40 milljónir króna og lögleiddi þar um leið að bankinn stæli um 20 milljónum af fólkinu.
Lánasafn Glitnis sem innihélt þetta lán var afhent Íslandsbanka með 47% afslætti.
Bankaránin halda áfram!
Stöðvum Íslensku mafíuna með aðgerðum á Stjórnlagaþingi. Nánar á www.austurvollur.is
28.8.2010 | 17:38
Fréttablaðið gerist fjölmiðlahóra glæpamanna
Fréttablaðið, sem sagt er útbreyddasti fjölmiðill landsins, lagðist gersamlega í ræsið í dag með drottningarviðtali við einn helsta fjárglæframann Íslandssögunnar.
Fleiri síður, þar á meðal forsíða blaðsins, eru teknar undir ásakanir m.a. á Sérstakan Saksóknara og Forsætisráðherra sem sagðir eru hundelta alsaklausan Fálkaorðu prýddan Sigurð Einarsson af annarlegum ástæðum.
Hinsvegar sjá fjölmiðlahórur Fréttablaðsins ekki ástæðu til að spyrja útí peningaþvættið í kringum Al-Thani málið, gerviviðskiptin sem færðu bankanum ekki krónu, færslur í hring um fleiri skúffufélög og lygasögurnar um arabískan fjárfesti sem Sigurður bar á torg í erlenda fjölmiðla til að blekkja markaðinn. Ansi útþynnt hvernig sneitt er framhjá óþægilegum spurningum í þessu máli og hvernig Íslensk þjóð er lítisvert með því að bera þann þvætting á torg að þetta hafi verið fullkomlega eðlileg og lögleg bankaviðskipti.
Vonandi dettur engum í hug að veita þessum blaðamönnum verðlaun í framtíðinni. Nær væri að reka Stíg Helgason og Ólaf Þ. Stepensen úr blaðamannafélagi Íslands fyrir að hórast undir eigendum blaðsins og vinum þeirra.
Vill rannsókn á vinnubrögðum sérstaks saksóknara | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 17:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
18.6.2010 | 12:51
Óreiða ríkisstofnana hindrar útsendingar Lýðvarpsins
...engu líkara en formaður þessarar stofnunar beri skjalasafn hennar í rassvasanum segir í bréfi Lýðvarpsins til úrskurðanefndar Póst og fjarskiptamála vegna deilu um útvarpstíðnina FM100.5 sem var endurúthlutað öðrum aðila þrátt fyrir að útvarpsleyfi Lýðvarpsins væri í fullu gildi. Nú er komið í ljós að ástæðan var óreiða í starfsháttum og skjalasafni Útvarpsréttarnefndar og Póst og fjarskiptastofnunar.
Lögmenn Lýðvarpsins telja endurúthlutun tíðninnar ekki standast lög og reglur um vandaða stjórnsýslu og beri úrskurðarnefndinni því að taka tíðnina FM100.5 af Kananum til að Lýðvarpið sem er hinn lögmæti rétthafi tíðninnar geti hafið útsendingar að nýju. Í bréfi Lýðvarpsins segir m.a.:
Rétt er að nefna í þessu sambandi að samskipti um málið bæði við PFS og Útvarpsréttarnefnd hafa verið nokkuð furðuleg og hefur viðmót þessara stofnana einkennst af því að reyna að réttlæta sitt klúður og heimfæra ábyrgð á innanhús mistökum þessara stofnana yfir á Lýðræðishreyfinguna. Þessa gætir m.a. í því að í byrjun er reynt að halda því fram af PFS og Útvarpsréttarnefnd að um tvö aðskilin útvarpsleyfi hafi verið að ræða. Í seinni bréfum stofnanna virðast ríkisstofnanirnar ekki lengur reyna að leysa úr klúðri sínu með slíkum töfrabrögðum um tvö aðskilin leyfi gagnvart Lýðræðishreyfingunni enda eins og við höfum bent þeim á er slíkt auðvitað fjarstæða enda ekki hægt að veita tvö útvarpsleyfi fyrir sama útsendingarsvæði fyrir sömu útvarpsstöð með sama kallmerki. Þá eru einnig furðuleg samskiptin við Útvarpsréttarnefnd um skjalavörslu stofnunarinnar og vinnuferli. Eins og fram kemur í meðfylgjandi fylgiskjölum er engu líkara en formaður þessarar stofnunar beri skjalasafn hennar í rassvasanum.
PFS reynir hinsvegar nýja útgáfu af töfrabrögðum til að komast hjá því að taka ábyrgð á eigin klúðri. Nú er sagt að það hafi verið á ábyrgð Lýðræðishreyfingarinnar að tíðnileyfinu yrði breytt til samræmis við framlengt útvarpsleyfi. Hinsvegar er sá hængur á þessar afstöðu PFS að þetta gengur þvert á hefðir og verkfallsreglur stofnunarinnar eins og fram kemur í svari PFS 15.06.10 sem afhjúpar óreiðu og óvönduð vinnubrögð PFS.
Einnig eru það forkastanleg vinnubrögð af starfsmönnum PFS að setja rekstur einnar útvarpsstöðvar í uppnám með fyrirskipun um flutning á milljóna króna útvarpsmastri en veita síðan öðrum aðila leyfi til að senda út frá sama mastri á sömu tíðninni á meðan Lýðvarpið bíður eftir úrskurði PFS um nýjan stað fyrir mastrið. Nýji aðilinn, útvarpsstöðin Kaninn, réðist síðan inní aðstöðu Lýðvarpsins og olli skemmdum á sendibúnaði. PFS hefur valdið Lýðvarpinu milljóna tjóni með rekstrartruflunum vegna þessarar skipunar um að færa útsendingarmastrið og þeirri yfirlýsingu starfsmanna PFS að Lýðvarpið geti átt von á því að slökkva þurfi fyrirvarslaust á sendinum á einhverjum tímabilum komi kvartanir frá aðilum á skíðasvæðinu í Bláfjöllum. Þetta hátterni Póst og fjarskipastofnunar er óvönduð stjórnsýsla með eindæmum sem vekur jafnvel upp spurningar hvort starfsmenn og stjórnendur PFS séu yfir höfuð starfi sínu vaxnir.
Bréfið má lesa í heild á fréttavakt Lýðvarpsins www.frettavakt.is
16.5.2010 | 16:48
Þingmenn eins og börn með eldspýtur
Þingmaður sendi mér svar við greininni Óverðskuldað traust stjórnvalda á bankamönnum.
Ég þakka svarið en efni þess veldur áhyggjum. Viðkomandi þingmaðurinn sem og flestir aðrir á þinginu, virðast hreinlega ekki skilja hætturnar sem felast í því að vogunarsjóðir sitji nú meðal stærstu hluthafa í Arion banka og hvert slíkar einkavæðingar gætu leitt.
Þingmennirnir eru eins börn að leik með eldspýtur.
Hér er það sem þingmaðurinn sendi mér:
Í breytingartillögum viðskiptanefndar við frumvarp ráðherra um fjármálaráðherra eru skilanefndum gert skylt að afhenda þeim sem þess óska kröfuskrá föllnu bankanna. Í kröfuskránni kemur fram hverjir hafa gert kröfur og hvaða kröfur hafa verið samþykktar og ætti hún því að gefa góða mynd af eigendum nýju bankanna.
Kveðja
Lilja
Ég er furðu lostinn yfir barnalegri tiltrú þingmannsins á því að þetta frumvarp afhjúpi raunverulega eigendur. Samkvæmt fréttum er Skattrannsóknarstjóri að reka sig á að raunverulegir eigendur hafa jafnvel ekki fundist uppí áttfaldan ættlið fyrirtækja sem hafa endað í aflandssvæðum og keðjan slitnað undir leppstjórn þarlendra lögfræðinga og endurskoðenda.
Hér er mitt svar til þingmannsins:
Ég er ekki sammála því að kröfuskráin sýni hverjir raunverulegir eigendur eru. Komið hefur fram að meðal kröfuhafa séu vogunarsjóðir (hákarlar!)
Rannsóknin gæti tekið 4 ár | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.5.2010 | 07:29
Brjáluð og vanhæf stjórnsýsla
Sífellt kemur betur í ljós hve vanhæf og snarbrjáluð stjórnsýslan er undir forystu tveggja fjórflokkanna.
Ríkisstjórnin er algerlega úti á túni og ráðherrarnir með hausana í mykjuhaug spillingar.
Stjórnleysið í sumum skilanefndum bankanna virðist algert.
Út úr þessu leikhúsi vitfirringana á Íslandi rísa bankaræningjarnir uppúr rústunum eins og ekkert hafi í skorist og endurreisa stærstu fyrirtæki landsins með þýfi sem þeir stálu af þjóðinni.
Jón Ásgeir situr í stjórnum erlendra fyrirtæki fyrir hönd ríkisvaldsins. Ólafur Ólafsson fékk fyrirgreiðslu og tekið á móti þýfi frá honum í endurreisn Samskip. Bakkabræður stýra enn stærsta símafyrirtæki landsins. Bónusfeðgar eru á sérkjörum um að halda stærstu verslunarkeðjunni.
Geta asnarnir í ríkisstjórninni og á Alþingi ekkert lært? Hversvegna hefur enginn þingmaður borið upp þá tillögu að þjóðnýta fyrirtækin sem voru byggð upp með stolnu fé?
Jón Ásgeir segir sig úr stjórn House of Fraser | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.5.2010 | 10:52
Óverðskuldað traust stjórnvalda á bankamönnum
Nákvæmlega ekkert er komið á daginn sem verðskuldar stuðningsyfirlýsingar Gylfa Magnússonar efnahags- og viðskiptaráðherra á bankamönnum.
Þvert á móti koma upp spurningarmerki um allt bankakerfið. Hverjir eru t.d. eigendur Arion banka?
Sögusagnir eru á kreiki um að erlendir vogunarsjóðirnir leppi þar fyrir Sigurð Einarsson, Jón Ásgeir Jóhannesson og aðra útrásarvíkinga. Hefur Gylfi kafað ofaní eignarhaldið af einhverju viti?
Hversvegna er ekki eignarhald Arion banka opinbert? Hvað er verið að fela? Hversvegna er ekki að finna lista yfir helstu eigendur á vefsíðu bankans?
Hversvegna njóta stóru bankaræningjarnir velvildar bankanna sbr. nýlegar endurfjárfestingar Ólafs Ólafssonar og Jóns Ásgeirs með þýfi úr gjaldþrota bönkunum? Hversvegna eru ekki fyrirtæki þessara manna þjóðnýtt eins og Samskip, 365 miðlar og önnur fyrirtæki sem tengjast bankaránunum með beinum hætti.
Með slíka klunna í ríkisstjórn sem raun ber vitni stefna Íslendingar hraðbyr í næsta svindlhring.
Gylfi treystir íslenskum bankamönnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 10:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.5.2010 | 13:02
Gæsluvarðhald og þjóðnýta fyrirtækin þeirra
Það er komið miklu meira en þarf til að taka þessa menn úr umferð. Ég skora á stjórnvöld að setja lög á Alþingi um þjóðnýtingu allra fyrirtækja sem tengjast svikamyllunni.
Í gæsluvarðhald með allt settið sem rændi bankana. Menn hljóta að vera búnir að sjá það núna að þetta var skipulögð glæpastarfsemi og skólabókardæmi um Ponzi svik.
Gæsluvarðhald fljótvirkasta leiðin til að endurheimta peningana. Sleppa þeim ekki fyrr en peningarnir eru fundnir.
Forgangsröðum hagsmunum, smákrimmana úr fangelsum og inn með stóru bankaræningjana strax og fyrirvaralaust.
Glitnir: Skýstróks-áætlunin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.5.2010 | 12:42
Tek hattin ofan fyrir skilanefnd Glitnis - Fylgja eftir með handtökum!
Aftengið bankaræningjana frá þýfinu með löngu gæsluvarðhaldi. Sleppið þeim ekki fyrr en stolnu peningarnir eru fundnir.
Aðgerðir skilanefndar Glitnis eru til fyrirmyndar. Þetta hefðu stjórnvöld átt að gera fyrir löngu.
Fylgja eftir með handtökum strax. Rýma fangelsin, sleppa smákrimmum, koma stóru bankaræningjunum bakvið lás og slá.
Ekki hægt að bjóða þjóðinni uppá að eiga viðskipti við glæpahyski. Þjóðnýta öll fyrirtæki sem tengjast svikamyllunni.
Blæs á froðuna úr Sigurði G. Guðjónssyni. Þótt einhver smáatriði hafi misfarist í stefnu Glitnis eru aðalatriðin rétt: Þessir menn rændu bankana innanfrá!
Jón Ásgeir segir Steinunni misnota dómstóla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 12:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)