Íslandi ógnað með kjarnorkuvopnum undir leikriti í Hafnarfirði

Herská stefna Íslenskra stjórnvalda ætti að vera hverjum manni hér áhyggjuefni. Við höfum lagst á sveif með stærstu hergagnaframleiðendum heims og Ísland hefur í undirlægjuhætti sínum lýst yfir stríði við stærsta kjarnorkuveldið. Leiðtogar þessara heimsvelda hafa báðir talað um notkun kjarnorkuvopna að undanförnu. 

Kjarnorkubyrgi á Keflavíkurflugvelli

Hversvegna eru NATO hermenn í kjarnorkubyrgi á Keflavíkurflugvelli og hvað gerist ef slík sprengja berst hingað? NATO hermenn í skjóli en Íslenska þjóðin berskjölduð? Eru þetta varnirnar sem við þurfum í dag?

Ofbeldisfull stjórnarskipti

Það þarf ekki að fara í neinar grafgötur um að Rússar telja þjóðaröryggi sínu ógnað með útþennslu NATO til austurs. Eftir að milljónir manns höfðu flúið Úkraníu, m.a. ein milljón til Rússlands, og tugur þúsunda drepnir í austurhéruðum af Úkranískum hersveitum réðist rússneski herinn inn í Úkraníu. Hér á vesturlöndum er talað um þessa innrás eins og hún hafi gerst í einhverju tómarúmi. Bréf Amnesti International og Human Rights Watch þar sem biðlað var til forseta Úkraníu að láta af fjöldamorðum í austur Úkraníu og ofsóknum gegn rússnesk mælandi fólki, blaðamönnum og stjórnmálafólki á svæðinu er ótvíræður vitnisburður um hve ástandið var orðið alvarlegt. Ástandið skapaðist í kjölfar uppreisnar með stuðningi bandarísku leyniþjónustunnar sem þvingaði fram ofbeldisfull stjórnarskipti í Úkraníu. 

Rússland mun grípa til kjarnorkuvopna

Telji rússneskir ráðamenn þjóðaröryggi ógnað af bandarísku leyniþjónustunni með sama hætti og gert var í Úkraníu eða með útþennslu eða stríðsleikjum NATO munu þeir grípa til kjarnorkuvopna. Þeir hafa ítrekað varað við þessu að undanförnu. Við höfum ekki efni á því að láta þessar viðvaranir eins og vind um eyru þjóta eins og gert var í aðdraganda innrásar Rússa í Úkraníu árið 2022. Þá hljómuðu einnig viðvaranir frá þeim hátt og skýrt en enginn hlustaði og því fór sem fór. 

Blindir og heyrnarlausir Íslendingar

Flestir Íslendingar virðast úti á túni með hausinn í moldarhaug blindir og heyrnarlausir gagnvart kjarnorkusprengju hættunni sem blasir við okkur. Virðast ætla að láta blekkjast enn eina ferðina af þaulæfðu leikriti málpípu hernaðarins.

Barnið sem notað var sem leikmynd á bíósviðinu í Hafnarfirði á enga framtíð fyrir sér nema við Virkjum Bessastaði til friðar og það sé gert af heilindum. Skeggjaparið er ekki sá friðarboði.

Sjá nánar vef minn: www.forsetakosningar.is

Screenshot 2024-03-22 095637


mbl.is Rússar segja Ísland styðja úkraínska nasista
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband