16.3.2009 | 22:03
Vanhæfir fjölmiðlamenn á ríkisjötunni
Fjölmiðlar sem standa sig ekki deyja drottni sínum.
Við þurfum einnig að hreinsa út hjá Ríkisútvarpinu.
Vanhæfni fréttamanna og stjórnenda RÚV stefnir lýðræðislegum kosningum í voða.
Spjátrungarnir sem hafa hreiðrað um sig í fílabeinsturni Ríkisútvarpsins fjarlægjast stöðugt meira grasrót samfélagsins og hafa lýðræðisreglur sem settar eru um starfsemina að engu.
Páll Magnússon tekur við uppsagnarbréfi frá Lýðræðishreyfingunni í yfirstærð sem tugir manns undirrituðu, en RÚV hefur gróflega brotið lýðræðislega jafnaðarreglu gegn samtökunum í aðdraganda alþingiskosninga.
Lýðræðishreyfingin hefur ekki fengið að kynna framboð sitt og stefnumál í RÚV eins og aðrir frambjóðendur.
Þessvegna viljum við Pál og allt hans vanhæfa hyski burt úr ríkisfjölmiðlunum.
Kynnið ykkur Lýðvarpið, nýtt útvarp þjóðarinnar á www.frettavakt.is
Nánari upplýsingar um Lýðræðishreyfinguna er að finna á www.lydveldi.is
Enn eitt dagblaðið hættir prentútgáfu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Fjölmiðlar, Pepsi-deildin | Breytt s.d. kl. 22:19 | Facebook
Athugasemdir
Mjög satt
Tómas, 16.3.2009 kl. 22:27
Já því miður hafa menn látið yfir sig ganga mismunun þar á bæ í áraraðir.
kv.Guðrún María.
Guðrún María Óskarsdóttir., 17.3.2009 kl. 01:37
Þú ættir að stofna þinn eigin fjölmiðil, nóg er til af atvinnulausum reyndum blaðamönnum til að starfa á hlutlausum miðli.
Jón Finnbogason, 17.3.2009 kl. 14:38
Jæja alltaf nóg að gera bara.....
Jón Óskar Þórhallsson (IP-tala skráð) 17.3.2009 kl. 15:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.