Færsluflokkur: Dægurmál

Þingmenn eins og börn með eldspýtur

Þingmaður sendi mér svar við greininni Óverðskuldað traust stjórnvalda á bankamönnum.

Ég þakka svarið en efni þess veldur áhyggjum. Viðkomandi þingmaðurinn sem og flestir aðrir á þinginu, virðast hreinlega ekki skilja hætturnar sem felast í því að vogunarsjóðir sitji nú meðal stærstu hluthafa í Arion banka og hvert slíkar einkavæðingar gætu leitt. 

Þingmennirnir eru eins börn að leik með eldspýtur.

Hér er það sem þingmaðurinn sendi mér:
Í breytingartillögum viðskiptanefndar við frumvarp ráðherra um fjármálaráðherra eru skilanefndum gert skylt að afhenda þeim sem þess óska kröfuskrá föllnu bankanna. Í kröfuskránni kemur fram hverjir hafa gert kröfur og hvaða kröfur hafa verið samþykktar og ætti hún því að gefa góða mynd af eigendum nýju bankanna.
Kveðja
Lilja

Ég er furðu lostinn yfir barnalegri tiltrú þingmannsins á því að þetta frumvarp afhjúpi raunverulega eigendur. Samkvæmt fréttum er Skattrannsóknarstjóri að reka sig á að raunverulegir eigendur hafa jafnvel ekki fundist uppí áttfaldan ættlið fyrirtækja sem hafa endað í aflandssvæðum og keðjan slitnað undir leppstjórn þarlendra lögfræðinga og endurskoðenda. 

Hér er mitt svar til þingmannsins:

Ég er ekki sammála því að kröfuskráin sýni hverjir raunverulegir eigendur eru. Komið hefur fram að meðal kröfuhafa séu vogunarsjóðir (hákarlar!) 


Þetta eru sálarlaus kvikindi sem myndu selja mæður sína hæstbjóðanda. Það myndi ekki koma mér á óvart að bakvið eignarhald slíkra aðila sé hluti af því þýfi sem útrásarvíkingarnir stálu af þjóðinni.

Þess fyrir utan er það glæfralegt af ríkisvaldinu að leyfa slíkum aðilum að vasast með rekstur viðskiptabanka á Íslandi. Vogunarsjóðir og eðlileg bankastarfsemi er eins og að blanda saman olíu og eld.


mbl.is Rannsóknin gæti tekið 4 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brjáluð og vanhæf stjórnsýsla

Sífellt kemur betur í ljós hve vanhæf og snarbrjáluð stjórnsýslan er undir forystu tveggja fjórflokkanna.

Ríkisstjórnin er algerlega úti á túni og ráðherrarnir með hausana í mykjuhaug spillingar. 

Stjórnleysið í sumum skilanefndum bankanna virðist algert. 

Út úr þessu leikhúsi vitfirringana á Íslandi rísa bankaræningjarnir uppúr rústunum eins og ekkert hafi í skorist og endurreisa stærstu fyrirtæki landsins með þýfi sem þeir stálu af þjóðinni.

Jón Ásgeir situr í stjórnum erlendra fyrirtæki fyrir hönd ríkisvaldsins. Ólafur Ólafsson fékk fyrirgreiðslu og tekið á móti þýfi frá honum í endurreisn Samskip. Bakkabræður stýra enn stærsta símafyrirtæki landsins. Bónusfeðgar eru á sérkjörum um að halda stærstu verslunarkeðjunni.   

Geta asnarnir í ríkisstjórninni og á Alþingi ekkert lært? Hversvegna hefur enginn þingmaður borið upp þá tillögu að þjóðnýta fyrirtækin sem voru byggð upp með stolnu fé?


mbl.is Jón Ásgeir segir sig úr stjórn House of Fraser
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Opið bréf til ÓRG forseta Íslands: Móðgandi niðurlagsorð þín í viðtali á Skjá1

Ólafur Ragnar Grímsson
Bessastöðum

16. apríl 2010.

Móðgandi niðurlagsorð þín í viðtali á Skjá1

Hr. forseti,

Ég ætla að biðja þig að láta af því að ákveða orð eða athafnir fyrir mína hönd eða annarra hugsanlegra frambjóðenda til embættis forseta Íslands. Einnig krefst ég þess að forsetinn gefi út opinberlega afsökunarbeiðni á ummælum sínum í viðtalsþætti við Sölva á Skjá1 þann 14 apríl s.l.

Í þessu viðtali sagðist þú ekki hafa sagt af þér embætti sökum þess að þú vildir ekki stefna þjóðinni í forsetakosningar og val á nýjum þjóðhöfðingja, þar sem hver sem hann hefði verið hefði örugglega ekki gengið þá götu að ganga gegn ríkisstjórninni í Icesave málinu. Þessi yfirlýsing er ekki við hæfi og í raun móðgun við forsetaframbjóðendur og þjóðina sjálfa.

Ég hef t.d. lýst yfir mjög afdráttarlausum skoðunum um forsetaembættið í ræðu og riti og þar á meðal þeirri skoðun minni að nauðsynlegt sé að virkja þann öryggisventil sem málskotsréttur forseta er með ábyrgum hætti í stórum og mikilvægum málum. Það hefði því ekki vafist fyrir mér að hafna Icesave lögunum staðfestingar. Ég hefði óskað eftir því strax í upphafi þegar fyrri lög um þetta mál bárust forseta Íslands, að þeim yrði vísað til þjóðaratkvæðagreiðslu. Þannig hefði ég með minni embættisfærslu á Bessastöðum tryggt mun betri stöðu Íslendinga í þessu mikilvæga máli.

Það hlýtur að teljast óeðlilegt að einstaklingur sem var keyptur, já ég segi og stend við þau orð “keyptur” í embætti forseta Íslands af helstu útrásarvíkingum, og sem hefur verið andlit svikahrappanna gagnvart erlendum þjóðum um árabil, sitji áfram sem þjóðhöfðingi Íslendinga.

Ég minni á að í aðdraganda forsetakosninganna árið 2004, ritaði ég OSCE (Öryggis og Samvinnustofnun Evrópu) á annan tug kvartana yfir því hvernig fjölmiðlar í eigu stuðningsmanna þinna voru misnotaðir til að blekkja þjóðina í aðdraganda kosninga. Eins og þar kemur fram var lýðræðið fótum troðið með grófri misnotkun fjölmiðla eins og þekkist varla nema í einræðisríkjum, til að draga upp af þér ranga og fegraða mynd á meðan mitt framboð og persóna var dregin niður í ræsið af fjölmiðlum í eigu sömu manna.

Ég minni á þá staðreynd að helstu starfsmenn og kosningastjórar þinna forsetaframboða 1996 og 2004 voru jafnframt starfsmenn og eða tengdust mjög náið ofangreindum stuðningsmönnum þínum og fjölmiðlum þeirra.   

Að lokum vil ég minna aftur á erindi mín send til þín sjálfs í aðdraganda forsetakosninganna 2004 að þú hafir misnotað forsetaembættið við synjun fjölmiðlalaga. Þar gekkst þú erinda útrásarvíkinga sem höfðu tangarhald á flestum fjölmiðlum landins og sem voru á þessum tíma notaðir óspart í þína þágu til að tryggja þér “rússneskar” kosningar á Íslandi.

Ég skora á þig að segja af þér án tafar og þvælast ekki lengur fyrir því endurreisnarstarfi sem þarf nú að eiga sér stað hjá Íslensku þjóðinni.

Virðingarfyllst,
Ástþór Magnússon
Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Nornaveiðar kerlinganna

Það er ekki konum til framdráttar þegar kerlinganornir á fjölmiðlum misnota aðstöðu sína.  Hér eru þrjú dæmi um slíkt:

Ritskoðun1. Elín Hirst. Þegar ég kom í viðtal á Stöð2 í aðdraganda forsetakosninga árið 1996 var ég í bókstaflegri merkingu hakkaður niður af Elínu Hirst. Í nornaveiðum sínum bar Elín á mig ýmsar grófar aðdróttanir sem áttu ekki við rök að styðjast. Þetta var sent út í opinni dagskrá. Þegar kom að mér að svara fyrir mig lét Elín læsa útsendingunni þannig að aðeins þeir sem höfðu greitt áskrift Stöðvar 2 gætu hlustað á svörin mín. 

Kommúnistar í Kína2. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. Margir hafa deilt á hlutdræg vinnubrögð Þóru Kristínar þegar hún starfaði á Morgunblaðinu. Ég kynntist þessu þegar ég mótmælti því að Borgarahreyfingin hafði látið bera mig út af fundum sínum með ofbeldi fyrir þær sakir að leggja til lýðræðisleg vinnubrögð. Flestir fjölmiðlar sem fluttu fréttir af fundinum sögðu einnig frá mótmælum á fundinum. Þóra Kristín hinsvegar sneiddi algerlega hjá mótmælum mínum og lofsöng þess í stað í sinni frétt af sama fundi þá ólýðræðislegu hreyfingu sem sigldi mánuðum saman undir fölsku flaggi í Íslensku þjóðlífi.  Frétt Þóru var þannig í litlu samræmi við það sem gerðist á þessum fundi. Á endanum fengu lýðskrumarnir nokkra vanhæfa einstaklinga kosna á þing með dyggri aðstoð Þóru sem lofsöng lýðskrumarana mánuðum saman á vef og síðum Morgunblaðsins, svo og formanns hópsins sem starfaði á RÚV eða sama fyrirtæki og Egill Helgason sem einnig misnotaði sína aðstöðu til blekkja þjóðina og ota lýðskrumurunum inná þing.

witch_flying_23. Agnes Bragadóttir.  Fyrst man ég eftir Agnesi þegar ég hringdi á fréttastofu Morgunblaðsins vegna einhvers máls Friðar 2000. Það fór hálfgerður hrollur um mig þegar ég talaði við fréttastjórann á vakt sem í þetta skiptið var Agnes í miklum nornaham. Í apríl s.l. í aðdraganda kosninga mætti ég svo í viðtal í Zetu Morgunblaðsins þar sem Agnes sat á kústskaftinu ásamt Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur og augljóslega ætluðu að efna til "grillveislu" með mig sem svínið. Vinur minn Sverrir Stormsker skrifaði pistil sem lýsir þessu ágætlega, bendi ykkur á að kíkja á hann: "Ástþór í stórfurðulegu viðtali"

Íslenskir fjölmiðlar þurfa endurskoðun og uppstokkun. Þeir þurfa að vera óhlutdrægur spegill samtíðar. Vettvangur mismundandi skoðana og lýðræðislegrar umræðu.

Þegar einstakir fréttamenn, stjórnendur eða eigendur fjölmiðla misnota aðstöðu sína til ota sínum tota eða vina sinna eru þeir að grafa undan þjóðfélaginu sem á endanum mun hrynja eins og við höfum séð gerast á Íslandi. Nýtt Ísland er byggt á sandi nema breyting verði á. Konur Íslands ættu að sameinast um að byggja nýtt og heiðarlegt Ísland og standa vörð um óhlutdræga fjölmiðlun.


mbl.is Ofbýður ástandið á ritstjórnum landsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fleiri hundruð þorpsfífl?

Nýju fötin keisaransÞegar ég benti á nauðsyn þess að hreinsa spillingu út úr stjórnarráðinu í forsetakosningum árið 1996 þegar kvótabraskið var að byrja að grafa undan þjóðfélaginu, var ég kallaður "þorpsfífl" í leiðara stærsta fjölmiðils þjóðarinnar. Eru þorpsfíflin nú orðin fleiri hundruð?

Væri nú ekki nær að nota atkvæði sitt í kosningum og losa sig við spillingaröflin í eitt skipti fyrir öll frekar en að standa úti í kuldanum á Austuvelli galandi eins og vindhani í eyðimörkinni?

Ef þið hefðuð ekki látið RÚV og spillta pólitíkusa blekkja ykkur við síðustu kosningar væri kannski nú kominn vísir að heilbrigðu og beinu lýðræði og þorpsfíflin gætu látið til sín taka á Alþingi frekar en gala ónýta þingmenn og ráðherra frammúr rúmum sínum á laugardag eftir laugardag.


mbl.is 200-300 á útifundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Segja Íslandi stjórnað af alþjóðlegum glæpahring

Sá orðrómur gengur nú manna á meðal í Evrópu að Íslandi sé stjórnað af alþjóðlegum glæpahring. Forseti Íslands hafi notað embætti sitt til að sannfæra heiðvirða breska bankamenn að selja Kaupthing svikamyllunni virtan breskan banka og þannig seilst ofaní vasa breskra fjárfesta.

Menn segja á meðan Nígeríska spillingalögreglan leiti 19 stjórnenda fimm fjármálafyrirtækja sem ríkið þurfti að bjarga með 2,6 milljörðum dala, er stærstu Íslensku fyrirtækjunum t.d. á sviði flutninga og símasamskipta stjórnað af þeim mönnum sem stálu hundruðum milljarða af breskum, þýzkum og hollenskum innistæðueigendum. Enginn hafi verið dreginn til ábyrgðar á Íslandi.

Niðurstaðan er sú að Ísland sé griðarland helstu fjárglæframanna heimsins og því beri að varast að eiga viðskipti við Íslendinga.


Egill Helgason vanhæfur til starfa á RÚV!

Í útsendingu Bylgjunnar í morgun sagðist Egill Helgason starfsmaður ríkisfjölmiðlanna Ríkisútvarpsins-RÚV hafa kosið Borgaraheyfinguna við síðustu alþingiskosningar.

Silfur Egils
Hér er líklegast komin skýringin á því hversvegna Lýðræðishreyfingin var útilokuð frá þættinum Silfur Egils á RÚV í aðdraganda kosninganna á meðan 8 fulltrúar Borgarahreyfingarinnar fengu ítrekað aðgang að þættinum 23 nóvember - 22 mars s.l.  Á sama tíma var Lýðræðishreyfingunni alfarið synjað um aðganga að Silfri Egils m.a. með þessum orðum eftir ítrekuð símtöl, fax og email undirritaðs til stjórnenda Silfur Egils: "Sæll Ástþór, Ekki hringja í hana Halldóru, hún ræður engu um hvað er þættinum. Ég mun ekki bjóða þér í þáttinn að sinni. mbk Egill"

Ljóst er að Egill Helgason misnotaði aðstöðu sína í þágu eigins stjórnmálaflokks í aðdraganda alþingiskosninganna . Hann er því vanhæfur til starfa á ríkisfjölmiðlunum. Ítrekuð er krafa okkar frá 20. mars s.l. að Agli Helgasyni og Silfri Egils verði vikið úr dagskrá Ríkisútvarpsins/ RÚV.  

Í því ástandi sem ríkir á Íslandi er það mjög alvarlegt og í raun nánast landráð að stjórnendur ríkisfjölmiðla komist upp með að misnota aðstöðu sína og hefta lýðræðislega umræðu eins og raun bar vitni á Ríkisútvarpinu-RÚV í aðdraganda alþingiskosninganna 2009. Enda heldur Íslenska sukkið áfram, engin bankaræningjanna kominn í gæsluvarðhald og reynt að þagga niður óþægilega gagnrýni.  

Lýðræðishreyfingin mun ekki una slíku ástandi. Við ítrekum þau 12 erindi, kvartanir og kærur, sem við sendum í aðdraganda kosninga um margvísleg atriða er vörðuðu mismunun Ríkisútvarpsins-RÚV gagnvart Lýðræðishreyfingunni. Þessu máli er ekki lokið enda hefur Ríkisútvarpið ekki svarað neinu þeirra erinda sem við sendum stjórnendum RÚV og eftirlitsstofnunum.  Minnt er á að Lýðræðishreyfingin sendi 12 erindi og flutti 3 "leikrit" við útvarpshúsið í Efstaleiti í aðdraganda alþingiskosninganna. Þannig þurfti að berjast fyrir mannréttindum og lýðræði á Íslandi árið 2009!

Lýðræðishreyfingin áskilur sér allan rétt til að nota bæði hefðbundnar og óhefðbundnar leiðir til að ná fram rétti sínum gagnvart ríkisfjölmiðlunum. Slíkt getur m.a. falist í því senda út alla fréttatíma Ríkisútvarpsins - hvenær sem er alla daga og allan sólarhringinn - um eigin útvarpsrás og birta ásamt  tilheyrandi viðvörun til almennings um svívirðilega framkomu starfsmanna Ríkisútvarpsins. 

Virðingarfyllst,
Lýðræðishreyfingin
Ástþór Magnússon


Ofangreint er innihald í bréfi sent til:
Páll Magnússon útvarpsstjóri og stjórnendur Ríkisútvarpsins
Ríkisútvarpið, Efstaleiti 1, 150 Reykjavík. Símbréf 5153001

Nefndarskipun um endurskoðun laga um fjármál stjórnmálaflokkana

Bréf sent forsætisráðherra Jóhönnu Sigurðardóttur: 

Kvörtun vegna nefndarskipunar um endurskoðun laga um fjármál stjórnmálaflokkana

Lýðræðishreyfingin gerir athugasemdir við skipun í nefnd um endurskoðun laga um fjármál stjórnmálaflokkana en samkvæmt fréttum frá Forsætisráðuneytinu eiga allir stjórnmálaflokkar sem tóku þátt í nýafstöðnum alþingiskostningum fulltrúa í nefndina nema Lýðræðishreyfingin.

Lýðræðishreyfingin er nú aftur sniðgengin með beinum og skipulögðum hætti eins og við máttum þola af ríkisfjölmiðlunum RÚVog Ríkisútvarpinu í aðdraganda kosninganna en þar fengum við ekki aðgang á jafnréttisgrundvelli fyrr en settar höfðu verið upp leiksýningar við útvarpshúsið í Efstaleiti í mótmælaskyni til að vekja athygli á ósómanum.  Lýðræðishreyfingin neyddist til þess að setja á fót eigin útvarpsstöð (Lýðvarpið) til að koma boðskap sínum á framfæri þegar Ríkisútvarpið var algerlega lokað fyrir okkur meðan önnur ný framboð eins og Borgarahreyfingin sem starfsmaður Ríkisútvarpsins var í forsvari fyrir fékk þar nær óheftan aðgang. Ríkisútvarpinu tókst með þessu hátterni að skekkja úrslit kosninga og þannig auka enn frekar mismunun. Ekki er hægt að líða slíkar uppákomur í því sem á að kallast lýðræði. Lýðvarpið mun því halda áfram að veita spillingaröflunum aðhald með því að vekja athygli á óvönduð fréttum ríkisfjölmiðlanna.

Lýðræðishreyfingin harmar tvöfeldni og óheiðarleika þeirra stjórnmálamanna sem virðst hafa blekkt þjóðina við síðustu kosningar. Til að mynda lofaði fjármálaráðherra í kosningasjónvarpi að koma á fót markaðsskrifstofu til að laða til Íslands erlend fyrirtæki eftir tillögum Lýðræðishreyfingarinnar og í tvígang lýsti því yfir að hann myndi hringja í Ástþór Magnússon vegna þessa. Ekkert slíkt símtal hefur borist og ríkisstjórnin virðist ekkert ætla að gera í þessu mikilvæga hagsmunamáli þjóðarinnar og virðist þess í stað ætla að blóðmjólka heimilin í landinu með auknum sköttum og niðurskurði.

Lýðræðishreyfingin hefur ítrekað kært misbresti í framkvæmd kosninga til Öryggis og Samvinnustofnunar Evrópu og þá sérstaklega hvað varðar aðgang að lýðræðislegri umræðu í ríkisfjölmiðlunum. Lýðræðishreyfingin hefur einnig gert athugasemdir við hvernig fjármálum stjórnmálaflokkanna er háttað og var þetta m.a. rætt við fulltrúa ÖSE er þeir voru hér í aðdraganda síðustu kosninga svo og við fjármálaráðherra stuttu fyrir útsendingu hjá Stöð2 við síðustu kosningar. Það er því miður að ríkisstjórnin kjósi að útiloka Lýðræðishreyfinguna frá þessari umræðu með því að veita okkur ekki aðgang að nýskipaðri nefnd á jafnréttisgrundvelli.

Virðingarfyllst,
Lýðræðishreyfingin
Ástþór Magnússon  
Jón Pétur Líndal  
Guðrún María Óskarsdóttir


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Úrslit kosninga koma ekki á óvart

Áhugavert er að skoða úrslit kosninga fyrri ára og bera saman við nú. Ný framboð hafa yfirleitt náð litlu kjörfylgi. Misnotkun ríkisfjölmiðlanna áratugum saman endurspeglast í óvirku lýðræði við alþingiskosningar.

Ný framboð hafa yfirleitt ekki átt upp á pallborðið hjá þáttastjórnendum ríkisfjölmiðlanna þótt á þessu hafi verið einstaka undantekningar eins og nú með Borgarahreyfinguna en formaður hennar er starfsmaður Ríkisútvarpsins, var meira að segja staðinn að því að vera á launum frá ríkisfjölmiðlinum í framboðsferð á Akureyri.

Lýðræðishreyfingin gaf út framboðsyfirlýsingu 5 mánuðum fyrir kosningar, í nóvember 2008 en þá voru borgarafundir Borgarahreyfingarinnar fyrirferðamiklir hjá RÚV. Talsmaður Lýðræðishreyfingarinnar borinn út af fundum þeirra fyrir þær sakir að leggja til lýðræðisleg vinnubrögð. Þrátt fyrir þetta hélt RÚV áfram að útvarpa og sjónvarpa fundum Borgarahreyfingarinnar.

Fram til 15 apríl (10 dögum fyrir kosningar) fékk Lýðræðishreyfingin tækifæri til að kynna sín málefni í ríkisfjölmiðlunum með einu stuttu innleggi í broti af Kastljósþætti RÚV. Þetta gerðist  eftir að send höfðu verið á annan tugur erinda til útvarpsstjóra og efnt tvívegis til mótmæla/leiksýninga við útvarpshúsið. En það reyndist eina leiðin til að brjótast í gegn þarna. Fram að þeim tíma var símtölum okkar svarað með útúrsnúningum og Lýðræðishreyfingunni gersamlega úthýst úr ríkisfjölmiðlunum.

Silfur EgilsÁ sama tíma fékk Borgarahreyfingin 21 innslag í ríkisfjölmiðlunum meðal annars fleiri klukkutíma í útsendingum bæði sjónvarps og útvarps frá borgarafundum sínum. Einnig fengu frambjóðendur Borgarahreyfingarinnar amk sex innkomur í Silfur Egils á meðan Lýðræðishreyfingunni var algerlega úthýst. Við höfum ekki í eitt einasta skipti fengið að koma í þann þátt! Ég minnist þess einnig að sama var uppá teningnum við borgarstjórnarkosningar þegar Egill Helgason úthýsti Flokki mannsins úr leiðtogaumræðum á Skjá einum, eini stjórnmálaleiðtoginn sem var útilokaður frá spjallborðinu.

Líklegast hefur þessi þöggun verið í gangi áratugum saman. Úrslit kosninga fyrri áratuga benda til þess. Lélegt kjörfylgi Lýðræðishreyfingarinnar er ekkert einsdæmi og virðist það frekar venjan en undantekningin að ný framboð nái engu kjörfylgi. Í ágætri úttekt Morgunblaðsins á þessu í dag kemur í ljós að Bandalag jafnaðarmanna fékk 0,2% 1987, Verkamannaflokkur Íslands fékk 0,1% árið 1991, Heimastjórnarsamtök 0,6% 1991, Grænt framboð 0,3% 1991, í kosningunum 1995 fékk Kristileg stjórnmálahreyfing 0,2%, Vestfjarðarlistinn 0,4%, Náttúrulagaflokkur 0,6%, Suðurlandslistinn 0,7%, árið 1999 fékk Humanistaflokkurinn 0,4%, Kristilegi lýðræðisflokkurinn 0,3% og Anarkistar 0,1%.

Eitt mikilvægasta mannréttindamál Íslendinga er að hér komist á virkt og heiðarlegt lýðræði. Grunvallar reglur lýðræðis eru opnir og hlutlausir fjölmiðlar. Nauðsynlegt er að setja án tafar fjölmiðlalög sem tryggja óhlutdræga umfjöllun í aðdraganda kosninga. Einnig þarf að endurskoða kosningalögin til að gæta þess að öll framboð sitji við sama borð hvað varðar fjárstyrki. Að hafa frambjóðendur í þeirri stöðu að þeir þurfi að skrapa styrki úr atvinnulífinu er lýðræðinu beinlínis hættulegt. Í bland við ofríki einstakra ríkisstarfsmanna á stærstu fjölmiðlunum er Íslenskt lýðræði sannkallaður spegill skrípræðis.
mbl.is Ekki víst að langt sé í land
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í dag ertu frjáls

xp2.jpgÍ dag getur þú valið frelsi úr kreppu og höftum. Komist til áhrifa á Alþingi Íslendinga. Lýðræðishreyfingin er eina stjórnmálahreyfingin sem mun gefa þér málfrelsi og ákvarðanafrelsi í beinu og milliliðalausu lýðræði á Alþingi.

Í dag getur þú fengið frelsi undan ánauð flokksræðis. Gefið mútuþægum pólitíkusum langt nef. Veittu þeim ærlega refsingu með því að eiga þína eigin rödd og þitt eigið atkvæði á Alþingi.

Í dag skrifum við Íslandssöguna. Þetta er dagurinn sem þjóðin getur gert sögulegar lýðræðisumbætur og rekið spillinguna á dyr.

xP Lýðræðishreyfingin er eini raunhæfi kosturinn ef þú vilt byggja nýtt Ísland. Enginn annar býður þér að virkja þitt atkvæði á Alþingi. Þú þarft ekki að afsala þér atkvæðisrétti næstu fjögur árin. Í Lýðræðishreyfinguna áttu þína rödd og þitt atkvæði á Alþingi sem þú getur nýtt þér hvenær sem þú vilt.

Við ætlum að sækja þýfið, þá hundruði milljarða sem útrásarvíkingarnir stálu af þjóðinni og nota öll tiltæk ráð til að ná lögum yfir spilltu grísina. Við munum beita hryðjuverkalögum eins og bretar gerðu gegn Landsbankanum þannig að öll sund lokist hjá spilltum útrásarvíkingum erlendis og þeir verði nauðbeygðir að koma heim og skila peningunum.

Við munum markaðssetja Ísland sem land tækifæranna um allan heim og byggja upp nýja atvinnuvegi, nýja skattstofna og tekjur. Við munum semja við eigendur jöklabréfanna og fá þeim umbreytt í langtíma fjárfestingasjóð atvinnulífsins til að fá erlendu fjárfestana með í að byggja upp nýtt Ísland og losa þannig þrýsting af krónunni.

Við munum hagræða í stjórnkerfinu og ríkisreksrinum án skattahækkana. Við munum ekki leggja aukna skatta á aðþrengd heimili. Með víðtækri atvinnuuppbyggingu stækkum við kökuna og náum í nýja skattstofna.

Við munum fá hingað færustu hagfræðinga heims til að aðstoða okkur við að umbreyta Íslensku bönkunum úr sveitasparisjóðum í öflugar alþjóðlegar fjármálastofnanir. Þannig færum við súrefni í allt efnhagslífið, lækkum vexti og styrkjum gjaldmiðilinn.

Merktu xP á kjörseðilinn, það er eina raunhæfa lausnin úr kreppunni.
mbl.is Kjörstaðir opnaðir klukkan 9
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband