Starfsmenn Össurar styðji vopnakaup um 16,4 milljónir

Glæsilegt íslenskt fyrirtæki stofnað af hugsjónamanni sem vildi láta gott af sér leiða og sem byggði um viðskiptaveldi á alþjóðamarkaði með stoðtæki fyrir hreyfihamlaða hefur nú beinan fjárhagslegan hag af stríðum sem geisa í Palestínu, Úkraínu og Lebanon.  

Sprengjur frá Íslandi auka stoðtækjaframleiðslu Íslendinga

Þannig eru Íslendingar orðnir hluti af stríðsvélinni. Í hvert sinn sem brjálaðir stríðsherrar sprengja fólk í tætlur bætast nýir viðskiptavinir í hópinn sem þarf stoðtæki frá Össur. Síðustu mánuði hafa tugir þúsunda bæst við hóp hreyfihamlaðra eftir sprengjuregn og þúsundir barna sem ekki voru drepin köldu blóði eru á biðlista eftir stoðtækjum. Framúrskarandi Íslenskt fyrirtæki og grandvaralausir starfsmenn eru dregnir inní þessa brjáluðu hringrás. 

Milljónir hirtar úr launaumslögum starfsmanna

Íslenskir alþingismenn virðast æstir í að fjármagna stríðsvélina á meðan þeir skera niður velferðarþjónustu Íslendinga. Nú ætlar Alþingi að seilast í launaseðla starfsmanna Össurar, að þeim forspurðum, og taka þaðan 16,4 milljónir á næsta ári og svo aftur og aftur og aftur. Ríkisstjórnin vill hið minnsta 65.6 milljónir króna frá því ágæta fólki sem starfar fyrir Össur og senda peninga í erlendan hernað og vopnakaup.

Hver fjölskylda greiði 100 þúsund til vopnakaupa

Starfsmenn annarra fyrirtækja í landinu fá einnig slíkan skatt þótt þeirra fyrirtæki hafi engar tekjur sem má rekja til hernaðarátaka. Lítil og stór fyrirtæki, hárgreiðslustofur, veitingastaðir og aðrir þurfa að greiða stríðsskattinn nema við grípum í taumana núna. 

7 milljarðar á ári til hernaðar 

Yfir 100 þúsund krónur á hvern kjósanda á kjörtímabilinu

Sama dag og Halla Tómasdóttir nýkjörinn forseti Íslands setti Alþingi lagði ríkisstjórnin fram fjárlagafrumvarp með nær 7 milljörðum til hernaðar á næsta ári að mestu fyrir Úkraínu. Á sama tíma er spennustigið að aukast og Rússar hóta að ráðast á þau ríki sem senda vopn. 

Gegn yfirlýstri stefnu forseta Íslands

Forseti Íslands hefur lýst andstöðu við þessar hugmyndir og segir hægt að semja um aðrar lausnir en vopnakaup. Segir samhljóm meðal þjóðarinnar að vilja ekki taka þátt í slíku athæfi:

„Það er ekki sjálfsagt að kaupa vopn, það er ekki sjálfsagt og Íslend­ing­ar úti um allt land hafa tekið und­ir með mér. Besta öryggisstefnan að vera alltaf landið sem velur frið og hættulegasta stefnan sem við getum valið sem þjóð er að að taka þátt í þessum átökum. Við getum verið litla þjóðin sem lyftir grettistaki í heiminum með því að velja frið" sagði Halla Tómasdóttir í fyrr á þessu ári. 

Þú getur stöðvað þetta brjálæði

Á vefnum www.austurvollur.is getur þú tekið þátt í átaki til stuðnings forseta Íslands að vísa vopnakaupum í þjóðaratkvæðagreiðslu

 


Ísland skotmark. Þjóðaröryggisstefna og stjórnskipan í uppnámi.

Í kjölfar þess að Katrín Jakobsdóttir afhjúpaði í fyrstu kappræðum forsetaframbjóðenda á RÚV að stjórnskipan landsins væri í uppnámi mætti ég á Bessastaði til Forseta Íslands. Þegar UMFI sendi mér boð um að mæta í Forsetahlaupið gær greip ég tækifærið og hljóp þessa 5 kílómetra til að hitta á Guðna Th. Jóhannesson forseta Íslands til að ganga eftir svari við bréfinu. Forsetinn lofaði að svar myndi berast fljótlega. 

AstthorForsetahlaupidÞörf á tafarlausu inngripi forseta
 
Samtökin Friður 2000 óska eftir tafarlausu inngripi forsetans vegna vopnakaupa Íslands til stríðs á erlendri grundu sem háð er utan NATO og hefur ekkert með varnir landsins að gera. Samkvæmt því sem kom fram í kappræðum frambjóðenda á RÚV í svari Katrínar Jakobsdóttur um málið hafa ákvarðanir um vopnakaup Íslands og þátttöku í stríði erlendis alfarið verið teknar af utanríkisráðuneytinu og án hennar aðkomu.
 
Stjórnskipan landsins í uppnámi
 
Ástþór segir þetta afhjúpa að stjórnskipan landsins er komin í uppnám og slíkar ákvarðanir án aðkomu Alþingis, forsætisráðherra og forseta er brot á stjórnarskrá Íslands, brot á þjóðaröryggisstefnu landsins, brot á sáttmála Sameinuðu þjóðanna og brot á NATO samningnum. 
 
Rússland skilgreinir Ísland sem óvinaþjóð
 
Rússneska varnarmálaráðuneytið tilkynnti í vikunni að vegna örgrana frá NATO þjóðunum séu þeir að hefja æfingar með kjarnorkuvopnum. Hernaðarsérfræðingar hafa að undanförnu lýst áhyggjum að styrjöld sé að brjótast út á norðurslóðum og Ísland sé skotmark. Rússneska utanríkisráðuneytið hefur lýst yfir að hið áður friðsæla Ísland sé orðin óvinaþjóð. Þessvegna vill Ástþór fara tafarlaust til Moskvu að ná friðarsamningum og afstýra árás á landið.   
 
Friður 2000 býður forseta Íslands aðstoð
 
Friður 2000 er tilbúið að útvega flugvél og fylgja forseta Íslands til Moskvu til aðstoða við friðarsamninga vilji Guðni Th. taka boltann strax og byrja að vinna að því að ná fram friðsamlegri lausn með Rússlandi. 
 
Bréf til forseta Íslands:
 
Íslendingar hafa löngum álitið sig vopnlausa og friðsama þjóð sem fari ekki með stríði gegn öðrum þjóðum. Þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland undirstrikar þetta. Vegna frétta af vopnakaupum Íslendinga er þess óskað að forseti Íslands svari eftirfarandi spurningum:

Bar einhver upp við forseta á ríkisráðsfundi eftirtaldar ákvarðanir:

  1. Að Ísland gerðist þátttakandi í styrjöld á erlendri grund

  2. Að Ísland tæki að sér flutninga á vopnum til slíkrar styrjaldar

  3. Að Ísland kaupi vopn til slíkrar styrjaldar fyrir skattfé þjóðarinnar

  4. Ef einhver bar þetta upp við forseta á ríkisráðsfundi, hver var sá aðili og hvaða dag var slíkt erindi kynnt forseta Íslands?

Afstaða forseta er mjög mikilvæg í þessu máli nú þegar þjóðin er að kjósa nýjan forseta. Tryggja þarf að það sé þjóðinni og væntanlegum forseta og stjórnmálastéttinni ljóst að stjórnarskráin, þjóðaröryggisstefnan og siðareglur ríkisstjórnarinnar eru leikreglurnar.

Hér má lesa bréfið til forsetans

 

mbl.is Pútín hótar aftur kjarnavopnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sápuóperan um Bessastaði og virðing forsetaembættisins

Fjölmiðlar deila og drottna yfir þjóðinni. Forsetakosningar á Íslandi hafa löngum minnt á rússneskar kosningar að því leiti hvernig ríkisfjölmiðlarnir eru endurtekið misnotaðir í þágu einstakra framboða. 

Spilað á þjóðina með ómarktækum könnunum

Umfjöllun RÚV um heimagerðar og ómarktækar kannanir kostaðar af einstökum framboðum þar sem niðurstöðu eru skekktar með því að taka tölfræði úr samhengi hefur löngum verið aðferðin. Nýlega var slík könnun birt frá Baldri og RÚV manninum Felix. Mitt nafn var t.d. ekki að finna í þessari könnun né í nýlegri Gallup könnun þrátt fyrir að fjölmiðlar höfðu þegar staðfest að ég væri kominn með tilskylda meðmælendur við mitt forsetaframboð. 

Herjað á samúðarfylgi

Eitt forsetaframboð hefur sett kynhneigð í forgrunn með sínum myndbirtingum og áherslum. Hátt og skýrt segjast tveir vera í forsetaframboði og birtast fúlskeggjaðir saman á öllum myndum. Einhverjar netverjar sáu spaugilegu hliðina síamstvíburum í forsetaframboði og birtu mynd af þeim í Facebook hóp. Í kjölfarið birtist grein á mbl.is þar sem frambjóðendurnir Baldur og Felix kölluðu þetta rætið og biðluðu til umsjónamanna síðunnar að fjarlægja hana. 

Screenshot 2024-04-07 220456Á myndinni er að finna ummæli frambjóðendanna sjálfra sem að mati framboðsteymis þeirra virðast ekki þola dagsins ljós. Þá er þar skjámynd frá vefsíðu forsetaembættisins sem flaggar baráttufána í stað þess að standa vörð um þjóðfána Íslendinga.

Þrátt fyrir að myndin væri ekki lengur aðgengileg á Facebook og kölluð fordómafullur áróður gegn samkynhneigðum var myndinni í kjölfarið dreift til þjóðarinnar á DV, visir.is og RÚV og reynt að herja á samúðarfylgi með ásökunum á annað forsetaframboð. 

Umrædd mynd sem upphaflega var send til mín af DV og áframdreift á Visir.is og RÚV virðist sprenghlægilega þjóðfélagsádeila. Þar sem virtustu fjölmiðlar landsins dreifðu myndinni til þjóðarinnar og blönduðu mér í málið fjalla ég um þetta sem áhorfandi að sápuóperunni.

Engir fordómar gegn samkynhneigðum hjá Ástþóri

HaffiHaffÉg hef nákvæmlega enga fordóma gagnvart samkynhneigðum, átt marga góða vini úr þeirra hóp og starfa daglega með samkynhneigðum stuðningsmönnum við mitt forsetaframboð. 

Það er ekkert nýtt fyrir mér að verða skotspónn gulu pressunnar og nettrölla á Íslandi. Eitt sinn var að finna yfir 17 þúsund níðskrif um mig á íslenskum vefsíðum.

Endurtekin sápuópera

Á þeim 28 árum sem ég hef tekið þátt í forsetakosningum hef ég ýmislegt séð sem betur mætti fara. Eitt af því er hvernig starfsmenn RÚV hafa spilað með þjóðina í aðdraganda kosninga. Fyrir átta árum hreinlega skutu þeir á loft frambjóðanda elítunnar. Í ár var það í fyrstu Eurovision stjarna RÚV sem stökk fullskeggjaður sem tilvonandi forsetafrú í framboð. Skeggjaparinu er leikstýrt af þekktum leikstjóra svipað öðru RÚV framboði árið 2012.

Stríðsástand á fréttastofum landsins

Hinsvegar virðist komið babb í bátinn með framboði forsætisráðherra og stríðsástand á fréttastofu allra landsmanna um hverjum eigi að troða í embættið í þetta sinn. Áhugavert verður að fylgjast með nýjasta leikritinu: Drottningardraumar Katrínar og Skeggjaparið. 

Spunameistarar

TvitterfærslurÞegar forseti Íslands leitaði ekki endurkjörs byrjuðu spunameistararnir að leita logandi ljósi að hraðsoðnum lausnum sem gætu gengið ofaní þjóðina í komandi forsetakosningum. Bakvið skeggjaða forsetaframboðið eru leiklistarhæfileikar án heilinda eða innihalds. 

Lokað fyrir athugasemdir

Spilað er með skoðanir fólks í heimagerðum könnunum. Sumir forsetaframbjóðenda fyrirfram útilokaðir. Nöfnin ekki á spurningalistanum. Örlítill hluti svarar og úr því framleidd tölfræði til að blekkja þjóðina. Lítisvirðingin sem sýnd er öðrum frambjóðendum endurspeglast í annarri talblöðru myndarinnar um opnu umræðuna en hávær umræða hefur verið á netinu um hvernig Baldur og Felix hafa lokað fyrir athugasemdir á sínum framboðssíðum. 

Leikstýrð kosningabarátta

Screenshot 2024-03-22 095637Það er áhyggjuefni ef kynhneigð frambjóðenda er orðið innihaldið í vandlega undirbúinni og leikstýrðri kosningabaráttu tveggja karla sem vilja komast á Bessastaði. Ætlar þjóðin virkilega að láta blekkjast enn eina ferðina af þaulæfðu leikriti málpípu hernaðarins nú þegar Íslandi er ógnað með kjarnorkuvopnum?

Barn í leikmynd

Barnið sem notað var sem leikmynd á bíósviðinu í Hafnarfirði á enga framtíð fyrir sér nema við Virkjum Bessastaði til friðar og það sé gert af heilindum. Skeggjaparið er ekki sá friðarboði enda haft eftir öðrum þeirra á umræddri mynd: “Þurfum 100 manna varnarlið” sem setur Ísland enn frekar á kortið sem eitt fyrsta skotmark kjarnorkusprengju í yfirvofandi stríði.

Herlið til Íslands

Boðskapur Baldurs Þórhallssonar um að koma á fót herliði hér gengur þvert á góða ímynd Íslands sem friðsælasta ríki heims samkvæmt World Peace Index. Við eigum að byggja á þessari arfleifð þjóðarinnar og Virkja Bessastaði til friðarmála. Þannig getum við byrjað að leiða heiminn til friðar og byggt upp nýjan atvinnuveg sem gæti aukið þjóðartekjur um 600 milljarða og skapað 21 þúsund ný störf um land allt. 

Opnum umræðuna

“Opnum umræðuna” á að vera forgangsmál á Bessastöðum og þar á ekki að loka fyrir athugasemdir. Forseti Íslands á að vera leiðandi í opinni og málefnalegri þjóðfélagsumræðu þar sem enginn er útilokaður frá þátttöku. Þrátt fyrir að hafa fengið á mig tugi þúsunda svívirðinga, oft nafnlaust, í tengslum mín forsetaframboð á s.l. þrjátíu árum opna ég hjarta mitt fyrir allri þjóðinni. Sem forseti mun ég bjóða alla velkomna til Bessastaða.

Vegið að virðingu forsetambættisins

Screenshot 2024-04-03 153122Vegið er að virðingu forsetaembættisins með því að flagga öðrum fánum en Íslenska fánanum. Forseti Íslands er verndari þjóðfánans, kirkju okkar og menningar. Hann á að flagga íslenska fánanum og vera stoltur af því. Forsetinn lítilsvirðir embættið með því að flagga báráttufána í stað þjóðfána okkar við byggingar embættisins og striplast um í tattúleik, hvert sem tilefnið er. Slíkt á ekki heima á opinberum síðum embættis forseta Íslands.

Guð fokinn út í veður og vind

Forseti Íslands er verndari þjóðkirkjunnar en valdi vindhana á kirkju Bessastaða í stað þess að standa vörð um þjóðtrú Íslendinga. Umræða birt í DV með tilvitnun í Facebook síðu Egils Helgasonar um að forsetakosningarnar séu að verða skrípaleikur lýsir vindhana Bessastaða ágætlega:  “Það verður að segjast eins og er, að þótt nv forseti sé ágætis maður, þá hefur honum tekist bærilega að setja embættið niður í frekar alþýðlegan búning með mislitum sokkum, buffum og öðru slíku dóti og þannig ruglað saman persónu og embætti, með frekar slælegum árangri. Þetta trúða ástand er kannski ástæða þess.“

Mismuna ekki fólki

Ég mismuna ekki fólki eftir kyni, kynhneigð eða trúarbrögðum, í mínum augum eru allir jafnir. 

Á www.forsetakosningar.is má finna svör mín við helstu spurningum, þar er einnig fjallað um skoðanir mínar á stöðu samkynhneigðra á Íslandi.  

Ástþór Magnússon
Höfundur er forsetaframbjóðandi

p.s. Mér var send skjámynd eftir að umfjöllun fjölmiðla en þekki hvorki þetta símanúmer né netfang sem birtist við umrædda síðu á Facebook.

WhatsApp Image 2024-04-07 at 16.03.30_6a27a0b0


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband