22.3.2024 | 10:03
Íslandi ógnað með kjarnorkuvopnum undir leikriti í Hafnarfirði
Herská stefna Íslenskra stjórnvalda ætti að vera hverjum manni hér áhyggjuefni. Við höfum lagst á sveif með stærstu hergagnaframleiðendum heims og Ísland hefur í undirlægjuhætti sínum lýst yfir stríði við stærsta kjarnorkuveldið. Leiðtogar þessara heimsvelda hafa báðir talað um notkun kjarnorkuvopna að undanförnu.
Kjarnorkubyrgi á Keflavíkurflugvelli
Hversvegna eru NATO hermenn í kjarnorkubyrgi á Keflavíkurflugvelli og hvað gerist ef slík sprengja berst hingað? NATO hermenn í skjóli en Íslenska þjóðin berskjölduð? Eru þetta varnirnar sem við þurfum í dag?
Ofbeldisfull stjórnarskipti
Það þarf ekki að fara í neinar grafgötur um að Rússar telja þjóðaröryggi sínu ógnað með útþennslu NATO til austurs. Eftir að milljónir manns höfðu flúið Úkraníu, m.a. ein milljón til Rússlands, og tugur þúsunda drepnir í austurhéruðum af Úkranískum hersveitum réðist rússneski herinn inn í Úkraníu. Hér á vesturlöndum er talað um þessa innrás eins og hún hafi gerst í einhverju tómarúmi. Bréf Amnesti International og Human Rights Watch þar sem biðlað var til forseta Úkraníu að láta af fjöldamorðum í austur Úkraníu og ofsóknum gegn rússnesk mælandi fólki, blaðamönnum og stjórnmálafólki á svæðinu er ótvíræður vitnisburður um hve ástandið var orðið alvarlegt. Ástandið skapaðist í kjölfar uppreisnar með stuðningi bandarísku leyniþjónustunnar sem þvingaði fram ofbeldisfull stjórnarskipti í Úkraníu.
Rússland mun grípa til kjarnorkuvopna
Telji rússneskir ráðamenn þjóðaröryggi ógnað af bandarísku leyniþjónustunni með sama hætti og gert var í Úkraníu eða með útþennslu eða stríðsleikjum NATO munu þeir grípa til kjarnorkuvopna. Þeir hafa ítrekað varað við þessu að undanförnu. Við höfum ekki efni á því að láta þessar viðvaranir eins og vind um eyru þjóta eins og gert var í aðdraganda innrásar Rússa í Úkraníu árið 2022. Þá hljómuðu einnig viðvaranir frá þeim hátt og skýrt en enginn hlustaði og því fór sem fór.
Blindir og heyrnarlausir Íslendingar
Flestir Íslendingar virðast úti á túni með hausinn í moldarhaug blindir og heyrnarlausir gagnvart kjarnorkusprengju hættunni sem blasir við okkur. Virðast ætla að láta blekkjast enn eina ferðina af þaulæfðu leikriti málpípu hernaðarins.
Barnið sem notað var sem leikmynd á bíósviðinu í Hafnarfirði á enga framtíð fyrir sér nema við Virkjum Bessastaði til friðar og það sé gert af heilindum. Skeggjaparið er ekki sá friðarboði.
Sjá nánar vef minn: www.forsetakosningar.is
Rússar segja Ísland styðja úkraínska nasista | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.3.2024 | 09:27
Bandaríkjamenn í stríðsham - Sjálfstæði þjóðarinnar í hættu
Vopnavæða upplýsingar og gögn
TikTok er byssa sem er miðað að höfði Bandaríkjamanna, varaði Richard Blumenthal, öldungadeildarþingmaður Demókrata, við í kjölfar trúnaðarfundar í þinghúsinu.
Kínversku kommúnistarnir eru að vopnvæða upplýsingar og gögn sem þeir eru stöðugt að safna frá 170 milljónum Bandaríkjamanna, sagði hann og útskýrði að upplýsingarnar væru svo hugsanlega notaðar til að hafa áhrif á umræðu um lýðræðisleg mál í Bandaríkjunum.
Njósnir bandaríkjanna ógna þjóðaröryggi Íslands og Evrópu
Nákvæmlega með þessum hætti halda bandaríkjamenn úti mestu njónsnastarfsemi sem mannkynið hefur nokkurn tíman séð og sem ógnar þjóðaröryggi Íslendinga. Íslenskir ráðamenn eru sofandi á verðinum.
Nánar er fjallað um þetta hér:
https://forsetakosningar.is/sjalfstaedi-thjodarinnar-i-haettu/
Byssa sem er miðað að höfði Bandaríkjamanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.3.2024 | 10:35
Vegið að heiðri Háskólans á Akureyri
Opið bréf sent Rektor Háskólans á Akureyri með afriti til Menntamálaráðherra:
Ég hef ávallt borið mikla virðingu fyrir Háskólanum á Akureyri sem framúrskarandi menntastofnun jafnvel á heimsmælikvarða. Það kom mér því verulega á óvart að verða fyrir aðkasti frá tveimur starfsmönnum skólans við heimsókn til Akureyrar s.l. fimmtudag.
Alvarlegar ásakanir sem eiga ekki við rök að styðjast
Svo gekk það alveg fram af mér þegar þriðji starfsmaðurinn misnotaði aðstöðu sína sem einn stjórnenda Háskólans á Akureyri til rógburðar með niðurlægjandi orðum um mig og mína örstuttu heimsókn í skólann við slúðurblaðið DV. Eftir honum hafði blaðamaður mjög alvarlegar ásakanir á mig sem eiga ekki við rök að styðjast.
Ég hafði strax símleiðis samband við umræddan starfsmann, Gunnar Rúnar Gunnarsson sem sagður er forstöðumaður reksturs faseigna Háskólans á Akureyri. Ég vakti athygli hans á því að áburðurinn í DV hefði ekki við rök að styðjast. Svar hans var að þetta hefði verið fært í stílinn af blaðamanni. Ég bað hann að draga ummælin sín til baka að öðrum kosti sæi ég ekki aðra leið en hann yrði að svara fyrir þennan áburð á mig fyrir Héraðsdómi. Hann tjáði mér í símtalinu að hann veldi þá leið, að málið fari áfram til dómstóla.
Brot á almennum hegningarlögum
Rógburður, meiðyrði og lygar af því tagi sem forstöðumaður fasteigna Háskólans á Akureyri er að bera á torg um mig á síðum sorpritsins DV er brot á almennum hegningarlögum og við slíku broti eru sektir eða fangelsi sem skipar þá viðkomandi á bekk sakamanna.
Háskólinn á Akureyri og Menntamálaráðuneytið hljóta að skoða þetta mál og í framhaldinu kanna það hvort ástæða sé til að fela fólki sem fer svo frjálslega með sannleikann eins og hér ber vitni trúnaðarstörf og umsjón með opinberum byggingum og fjármunum.
Samrýmist það stöðu forráðamanna menntastofnana að bera út slúður?
Það samrýmist varla stöðu forráðamanna helstu menntastofnana landsins að lepja lygasölur í fjölmiðil sem hefur helst unnið sér það til frægðar að eitt fórnarlamb umfjöllunar blaðsins framdi sjálfsmorð sem gekk svo fram af þjóðinni að ritstjórnin hrökklaðist frá og blaðið lagði upp laupana sem dagblað og er nú ómerkilegur slúðurdálkur á netinu. ttps://www.deiglan.is/9484/
Ber Háskólinn á Akureyri skaðabótaábyrgð?
Með þessu bréfi fer gef ég þér sem æðsta stjórnanda Háskólans á Akureyri tækifæri til að draga til baka áburð frá skólanum á mína persónu með opinberri yfirlýsingu. Að öðrum kosti verður þetta mál kært til Lögreglunnar en um er að ræða brot á 234-236.gr. almennra hegningarlaga að viðlagðri refsingu allt að tveggja ára fangelsi. Jafnframt verður höfðað meiðyrðamál fyrir dómstólum og þar sem um er að ræða einn æðsta stjórnanda skólans, verður það skoðað hvort stofnunin Háskólinn á Akureyri ber einnig skaðabótaábyrgð.
Ummælin sem eiga ekki við rök að styðjast:
Uppákoma var í matsal Háskólans á Akureyri þegar Ástþór Magnússon mætti til að safna undirskriftum og kynna hugmyndir sínar varðandi framboð sitt til embættis forseta Íslands.
Ég kannast ekki við að hafa átt þátt í neinni uppákomu í matsal Háskólans á Akureyri. Ég var ekki vitni að orðaskiptum kvikmyndagerðarmanns við konu í matsal því ég snéri baki í þau og hvorki heyrði né tók þátt í samræðum þeirra.
Aðvífandi kom Gunnar Rúnar Gunnarsson, forstöðumaður reksturs fasteigna í háskólanum. Hann segir að Ástþór hafa verið að ræða við grunnskólabörn úr áttunda bekk, sem voru í starfakynningu.
Þetta á ekki við nein rök að styðjast. Ég talaði aldrei við umræddan Gunnar, né sá hann. Ég ræddi heldur ekki við grunnskólabörn á leið minni um skólann s.l. fimmtudag. Í símtali mínu við Gunnar eftir að greinin birtist í DV tjáði hann mér að hann hefði þessa sögu eftir öðrum. Semsagt hrein gróusaga sem dreift er af einum æðsta stjórnanda Háskólans á Akureyri.
Þeir voru ekkert í háskólanemunum. Þeir fengu athugasemdir niður í sal vegna þess að þeir voru bara í grunnskólabörnum.
Þetta á heldur við engin rök að styðjast. Ég fékk engar athugasemdir í sal og talaði ekki við nein grunnskólabörn. Gekk stuttan hring um þennan sal sem virtist opinn viðburður sem flæddi út í anddyri skólans þar sem einnig voru kynningarborð frá fyrirtækjum og stofnunum. Í þær fáeinu mínútur sem ég gekk hringinn og kíkti á kynningarbása kastaði ég kveðju á starfsmenn fyrirtækja og stofnana sem voru þarna til að kynna sína starfsemi.
Vaða inn í miðjar kynningar, inn í samræður, inn í allt
Ég óð ekki inní neinar kynningar eða samræður. Kastaði aðeins kveðju á starfsfólk sýningarbása sem stóð við sín borð og sem voru ekki í samræðum við einn eða neinn.
Er þetta fyrsta innlegg rekstors í kosningabaráttu um Bessastaði?
Eyjólfur, þú hefur lýst því yfir í fjölmiðlum að þú sért að íhuga forsetaframboð. Ekki veit ég hvort ofangreind aðför að mér í háskóla stofnuninni sem þú stýrir sé fyrsta innlegg þinna starfsmanna eða stuðningsmanna í kosningabaráttuna. Ég vona að kosningabarátta frá æðsta stjórnanda helstu menntastofnunar landsins verði málefnalegri en þetta.
Ítrekaðar og upplognar mannorðsárásir í 28 ár
Ég hef ítrekað mátt þola slíkar árásir í fjölmiðlum í þau 28 ár sem ég hef reynt að kynna þá hugmynd að embætti forseta Íslands beiti sér í friðarmálum á alþjóða vettvangi. Á sama tíma hafa íslenskir ráðamenn lagst á sveif með hergagnaframleiðendum, talað fyrir auknum hernaði, auknum fjárútlátum í vopn og notað skattfé þjóðarinnar til að greiða undir hergagnaflutninga. Ekki er ólíklegt að þeir tefli fram forsetaframbjóðanda til að standa vörð um hernaðarstefnuna á Bessastöðum. Ekki veit ég hvort þú verður slíkur frambjóðandi elítunnar, en ég vona amk að forsetakjör geti farið fram á málefnalegum grundvelli í stað rógburðs og slúðurs frá æðstu menntastofnunum landsins.
Verði ummælin ekki dregin til baka með opinberri yfirlýsingu og afsökunarbeiðni til undirritaðs fyrir lok dags mánudaginn 4. mars 2024 verður málið sent áfram til lögmanns og lögreglu.
Virðingarfyllst,
Ástþór Magnússon
Ofangreint bréf er sent til:
Eyjólfur Guðmundsson Rektor, Háskólinn á Akureyri, rektor@unak.is
Afrit sent Menntamálaráðherra: Ásmundur Einar Daðason asmundurd@althingi.is
Nánar á www.forsetakosningar.is